Hlutdræg fréttamennska um Karlaathvarf og styrki – Gagnrýnir umfjöllun RÚV og Vísis harðlega

Einar Steingrímsson stærðfræðingur gagnrýnir harðlega umfjöllun RÚV og Vísis um styrkveitingu til Samtaka um Karlaathvarf og segir fréttaflutninginn bæði skammarlega lélegan og hlutdrægan.

Í grein sem hann birti á Vísi 19. janúar segir hann fjölmiðlana hafa málað villandi mynd af ákvörðun þáverandi félagsmálaráðherra og jafnframt ráðist persónulega á talsmenn Karlaathvarfsins.

Auglýsing

Einar bendir á að fjölmiðlarnir hafi byggt umfjöllun sína á mati sérstakrar nefndar um styrkumsóknir, en hafi ekki birt skjalið í heild sinni né útskýrt hvernig matið var unnið.

„Það er útilokað fyrir lesendur að meta hvort óeðlilegt hafi verið að ráðherra tæki aðra ákvörðun en þar var lagt til án þess að vita þetta,“ skrifar Einar.

Órökstutt mat 

Í greininni rekur Einar að umsagnir nefndarinnar um umsóknir hafi verið afar stuttar og óljósar.

Hann nefnir að um þrjár umsóknir sé einungis sagt: „Gott verkefni og vel unnin umsókn. Að okkar mati þó ekki forgangsverkefni m.t.t. annarra umsókna og úthlutunarfés.“

Um aðra segir aðeins að styrkir hafi áður verið veittir eða að fjármunum skuli varið í tiltekna þjónustu.

„Ofangreint er sem sagt ALLT sem nefndin hafði að segja um þessar þrjár umsóknir,“ skrifar Einar og bætir við að umsögnin þar sem lagst var gegn styrk til Karlaathvarfsins hafi verið mun ítarlegri en hinar.

Að hans mati sé eðlilegt að efast um ákvörðun ráðherra sem gengur gegn niðurstöðu nefndar, en segir að til að hægt sé að draga ályktanir þarf mat slíkrar nefndar auðvitað að vera rökstutt.

Fullyrðingar um lögregluna gagnrýndar

Einar gagnrýnir sérstaklega að gefið hafi verið í skyn að styrkur til Karlaathvarfsins hafi verið veittur á kostnað styrks til lögreglunnar á Suðurlandi.

„Lögreglan í landinu fer með marga milljarða á ári í starf sitt,“ skrifar hann og spyr hvers vegna ætti að styrkja lögreglu úr sérstökum sjóði fyrir félagsleg verkefni.

Hann segir slíkan samanburð villandi og ómálefnalegan.

Persónulegar árásir

Í greininni fer Einar einnig yfir umfjöllun fjölmiðlanna um tvo talsmenn Karlaathvarfsins.

Hann segir það málinu óviðkomandi að rifja upp eldri mál þeirra og bendir á að einhliða sé fjallað um meiðyrðamál eins þeirra þar sem aðeins sé nefnt eitt mál sem tapaðist en ekki þau sem sami maður vann.

„Þetta kemur fréttaefninu auðvitað ekkert við.“

Hann telur jafnframt sláandi að fjölmiðlarnir hafi ekki nefnt að meðal þeirra sem hlutu styrki hafi verið einstaklingur sem hafi fengið áminningu fyrir brot á siðareglum í starfi.

„Öfugt við gömlu fréttirnar um karlana tvo þarf eitthvað verulega ámælisvert til að lögmenn fái slíkar áminningar,“ skrifar Einar og segir að þarna sé um augljósa hlutdrægni að ræða.

Hagsmunaárekstrar ekki upplýstir

Að sögn Einars hefðu fjölmiðlarnir einnig getað upplýst um mögulega hagsmunaárekstra innan matsnefndarinnar.

Hann segir að starfsmaður ráðuneytisins, sem jafnframt hafi verið í forsvari fyrir samtök sem fengu styrk, hafi setið í nefndinni.

„Vandaðir fjölmiðlar hefðu auðvitað upplýst um svo hróplegan hagsmunaárekstur,“ skrifar hann.

Krefjast rannsóknar á meintum hagsmunaárekstrum í félagsmálaráðuneytinu – Starfsmaður kemur að mati umsókna en situr einnig í stjórnum fyrirtækja sem sækja um

Hann bætir við að nefndin hafi, eftir hans bestu vitund, verið skipuð þremur konum og engum körlum og spyr hvort sams konar gagnrýni hefði heyrst ef þrír karlar hefðu lagt til styrk til karlaathvarfs.

Kallar eftir breytingum á fréttaflutningi

Í lok greinarinnar kallar Einar eftir því að íslenskir fjölmiðlar endurskoði vinnubrögð sín.

Hann segir umfjöllunina bera merki áróðurs og þjóna pólitískum tilgangi.

„Það er kominn tími til að íslenskir fjölmiðlar hætti þeim gegndarlausa öfgafemíníska áróðri sem fréttastofur margra þeirra stunda,“ skrifar hann.

Hann segir að í stað gagnrýninnar umfjöllunar sé hreyfingum sem falli að ríkjandi hugmyndafræði hampað, á meðan allt sem tengist baráttu fyrir réttindum karla sé sett í neikvætt samhengi.

„Vilji menn reyna að rétta hlut karla, til dæmis með því að koma upp Karlaathvarfi, er fjallað um það á niðrandi hátt.“

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing