Fjórir menn slösuðust, þar af tveir alvarlega, í hnífabardaga sem átti sér stað síðdegis sunnudaginn 6.júlí í bænum Lommel í Belgíu.
Að sögn yfirvalda brutust átökin út við strætóskýli þar sem tugir manna réðust á einstakling sem dvelur í húsnæði á vegum bæjarins fyrir hælisleitendur í bænum.
Samkvæmt borgarstjóranum, Peter Vanderkrieken, voru árásarmennirnir um tuttugu talsins og allir af afgönskum uppruna.
Þeir eru ekki búsettir í bænum heldur eru sagðir hafa komið þangað sérstaklega til að gera upp sakir við einn eða fleiri af þeim hælisleitendum sem búsettir eru í bænum.
Tveir af hinum særðu eru í lífshættu og voru fluttir með á sjúkrahús.
Hinir tveir voru fluttir á sjúkrahús í Lommel.
Lögregla og sjúkraflutningamenn fjölmenntu á vettvang og handtóku sex einstaklinga.
BREAKING:
A video of today’s mass-stabbing in Lommel, Belgium is going viral.
Two rival groups from the local asylum center clashed on the town’s streets, armed with bats and knives.
2 people were seriously injured in the mass-stabbing and 6 people were arrested. pic.twitter.com/eovQRLMbwr
— Visegrád 24 (@visegrad24) July 6, 2025