Tveir notendur vinsælu megrunarlyfjanna Ozempic og Wegovy segjast hafa misst sjónina varanlega eftir notkun lyfjanna og hafa nú höfðað mál á hendur danska lyfjaframleiðandanum Novo Nordisk.
Segjast ekki hafa verið varaðir við
Cilette Mitchell, 64 ára fjögurra barna móðir og amma ellefu barna frá Kaliforníu, segir að líf hennar hafi gjörbreyst eftir að hún tók lyfin.
Hún greindist með sjúkdóminn non-arteritic anterior ischemic optic neuropathy (NAION) í báðum augum, sem veldur varanlegu sjónleysi.
„Það er sárt að vita að ég mun ekki geta séð andlit barnabarna minna almennilega eða upplifað stærstu stundir lífs þeirra,“ sagði Mitchell í samtali við New York Post. „Hefði ég vitað að Ozempic myndi taka sjónina frá mér, hefði ég aldrei tekið það.“
Hún lýsir því að einkenni hafi byrjað sem „dökk ský í augunum“ nokkrum mánuðum eftir að hún hóf notkun lyfjanna og fljótlega eftir það missti hún sjónina algerlega.
Nýtt mál í New Jersey
Annað mál var höfðað af karlmanni frá New Jersey sem einnig missti sjónina vegna NAION, samkvæmt gögnum málsins. Hann segist nú algjörlega háður eiginkonu sinni og geti hvorki ekið né lesið.
Bæði málin voru lögð fram í New Jersey í síðustu viku, þar sem bandarískt höfuðstöðvar Novo Nordisk eru staðsettar.
Í málsskjölum er fyrirtækið sakað um að hafa farið með „villandi og blekkjandi mál“ um raunverulegar áhættur lyfjanna.
Vísað er í rannsóknir sem benda til þess að hætta á sjónmissi vegna NAION tvöfaldist með notkun lyfjanna.
Framleiðandinn neitar ábyrgð
Novo Nordisk hafnar ásökunum og segir NAION vera sjaldgæfan sjúkdóm sem ekki tengist lyfjunum.
Fyrirtækið vísar til eigin rannsókna og niðurstaðna frá Háskólanum í Suður-Danmörku.
Lögmenn saka fyrirtækið um að draga úr alvarleika málsins
Lögmaður stefnenda, segir skjólstæðinga sína hafna alfarið fullyrðingum Novo Nordisk. „Þau hafna því að áhættan sé lítil. Þau búa nú við varanlega skerðingu sem mun há þeim til æviloka,“ sagði hann.
Málflutningurinn byggir m.a. á rannsókn sem birt var árið 2024 í Journal of the American Medical Association.
Þar kom fram að notendur Ozempic og Wegovy væru marktækt líklegri til að þróa með sér NAION, þó var sagt að þörf væri á frekari rannsóknum.
Fjölmörg mál komin fram
Fleiri fyrrverandi notendur hafa nýlega höfðað mál á hendur Novo Nordisk vegna sambærilegra einkenna.
Í stefnum er bent á að viðvörunarmerki á umbúðum lyfjanna nefni ekki NAION sem mögulega aukaverkun.