Áhrifavaldar bannaðir frá öllum næturklúbbum Miami fyrir að spila ‘Heil Hitler’ – Tate bræður og Nick Fuentes í hópnum

Hópur áhrifavalda hefur verið bannaður frá flestum næturklúbbum í Miami eftir að myndbönd fóru í dreifingu þar sem þeir sjást spila lagið „Heil Hitler“ eftir Kanye West og heilsa að nasistasið, bæði inni í bifreið og síðar á vinsælum næturklúbbi í Miami Beach.

Meðal þeirra sem tengdir eru málinu eru Andrew og Tristan Tate, Myron Gaines og Walter Weeks úr Fresh & Fit, Nick Fuentes, Justin Waller og Sneako.

Auglýsing

Myndböndin sýna hópinn syngja lagið og einn þeirra sést framkvæma nasistakveðju með handahreyfingu.

Myndbönd vöktu mikla reiði

Atvikið átti sér stað aðfararnótt laugardags og voru myndböndin tekin bæði í eðalvagni og síðar inni á næturklúbbnum Vin Dome í Miami Beach.

Myndböndin fóru strax í dreifingu á samfélagsmiðlum og vöktu mikla reiði meðal almennings og borgaryfirvalda.

Borgaryfirvöld fordæma atvikið

Borgarstjóri Miami sagðist hafa fyllst viðbjóði viðbjóði eftir að hafa séð myndbandið og sagðist ekki trúa því að slíkt væri að eiga sér stað í borginni.

Hann sagði að fólk hefði sést hlæja og fagna Adolf Hitler og nasistakveðjunni, sem væri algjörlega óásættanlegt.

Lögreglustjóri Miami tók í sama streng og sagði slíka hegðun ekki eiga heima í Miami Beach né nokkurs staðar annars staðar í heiminum.

Hann sagðist varla getað trúað því að fólk í borginni væri að fagna þessu kallaði áhrifavaldana litlu betri en dýr (animals).

Bannaðir frá næturklúbbum borgarinnar

Borgarstjórinn greindi frá því að hann hefði rætt við rekstraraðila annarra næturklúbba í borginni og að hópurinn væri ekki velkominn þar.

Hann sagðist vilja fá skýr svör við því hvernig þeim hefði yfir höfuð verið hleypt inn á umræddan klúbb.

Næturklúbburinn biðst afsökunar

Vin Dome gaf út yfirlýsingu á samfélagsmiðlum þar sem segir að reksturinn fordæmi með öllu gyðingahatur, hatursorðræðu og hvers kyns fordóma.

Þar kemur einnig fram að stjórnendur séu slegnir yfir þann skaða sem atvikið hafi valdið og þeirri umræðu sem myndböndin hafi kveikt.

Í yfirlýsingunni segir að verið sé að skoða öryggisráðstafanir og verklag til að tryggja að slíkt endurtaki sig ekki.

Þá hafi hafist vinna við að kanna hver hafi heimilað að lagið væri spilað, svo hægt sé að draga viðkomandi til ábyrgðar.

„Ekki velkomnir í Miami Beach“

Að lokum sendi borgarstjórinn skýr skilaboð til þeirra sem komu fram í myndböndunum og sagði hegðunina viðbjóðslega og skammarlega.

Hann undirstrikaði að þeir væru ekki velkomnir í Miami Beach.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing