Lorena Isceri, 45 ára kona frá Flórens, hringdi í neyðarlínuna úr skottinu á sínum eigin bíl eftir að fyrrverandi kærasti hennar hafði ráðist á hana, bundið hana og svo rænt.
Símtalið stóð í um tuttugu mínútur. Lögreglan reyndi að rekja ferð bílsins en náði ekki til hennar í tæka tíð. Maðurinn er talinn hafa kastað Lorenu fram af brú á A1 hraðbrautinni áður en hann svipti sjálfan sig lífi.
Sat fyrir henni í bílakjallaranum
Samkvæmt rannsókn ítölsku lögreglunnar beið hinn 36 ára Federico Vella eftir Lorenu í bílakjallaranum við heimili hennar í Flórens.
Hann er talinn hafa límt yfir ljósnema við hurðir kjallarans svo þær lokuðust ekki, ráðist síðan á Lorenu þegar hún kom heim og bundið hendur hennar og fætur með plastböndum (zip).
Því næst setti Lorenu hana í skottið á bílnum hennar og ók af stað.
Lögregla fann síðar límband og plastbönd í bíl mannsins. Rannsakendur telja það styðja þá kenningu að árásin hafi verið skipulögð fyrir fram.
Hringdi úr skottinu
Taska Lorenu hafði verið sett í skottið með henni. Þrátt fyrir að vera bundin tókst henni að ná í símann og hringja í neyðarlínuna 112.
„Hann réðist á mig í bílakjallaranum, barði mig og rændi mér,“ sagði hún samkvæmt ítölskum fjölmiðlum.
Hún gaf lögreglu upp nafn mannsins og aldur en vissi ekki hvert hann var að fara með hana. Sambandið var slæmt á meðan bíllinn ók eftir hraðbrautinni, en símtalið stóð í um tuttugu mínútur.
Þegar bíllinn stöðvaðist opnaði maðurinn skottið. Lögreglumenn hlustuðu á án þess að geta gripið inn í og reyndu á sama tíma að staðsetja bílinn.
„Ég elska þig, við skulum byrja aftur saman“
Lorena virðist þá hafa reynt að róa manninn og tefja fyrir honum þar til lögreglan kæmi.
„Federico, hvað ertu að gera? Ég elska þig. Hafðu engar áhyggjur, við skulum byrja aftur saman,“ sagði hún.
Skömmu síðar er maðurinn talinn hafa uppgötvað símtalið, tekið af henni símann og kastað henni fram af brú við Barberino del Mugello.
Lögreglan kom of seint
Lögreglan fann bílinn eftir neyðarkall Lorenu en þá var hún hvergi sjáanleg.
Maðurinn stóð sjálfur við vegriðið þegar lögreglumenn komu á vettvang og virtist tilbúinn að stökkva framaf brúnni. Lögreglumennirnir reyndu í nokkurn tíma að telja hann ofan af því að stökkva en án árangurs.
Lík beggja fundust fyrir neðan brúna.
Krufning á að leiða í ljós hvort Lorena var enn á lífi þegar henni var kastað niður.
Var hrædd en kærði hann ekki
Móðir Lorenu segir dóttur sína hafa verið mjög hrædda við manninn. Samband þeirra hafði staðið í tæp tvö ár en orðið sífellt erfiðara og maðurinn verið orðinn mjög stjórnsamur og með mikla þráhyggju.
Lorena sleit sambandinu tæpum mánuði fyrir morðið. Hún hafði þó ekki kært manninn eða reynt að fá á hann nálgunarbann.
„Hún vildi ekki skaða hann eða orðspor hans,“ sagði móðir hennar þegar hún var spurð hvers vegna.
Lorena er sjöunda konan á Ítalíu frá 15. ágúst sem er myrt af núverandi eða fyrrverandi maka.