Hryllingur á Kanarí eyjum – Ólöglegur innflytjandi kveikti í 17 ára kærustu sinni

20 ára gamall marokkóskur karlmaður hefur verið handtekinn í Las Palmas de Gran Canaria eftir að hann kveikti í 17 ára kærustu sinni aðfaranótt miðvikudags.

Atvikið átti sér stað í yfirgefnu húsi í La Isleta-hverfinu þar sem parið bjó saman.

Auglýsing

Stúlkan er með brunasár á 95 prósentum líkamans og er haldið sofandi, í lífshættu, á gjörgæslu við háskólasjúkrahúsið Dr. Negrín.

Hellti yfir hana eldsneyti og kveikti í

Samkvæmt fyrstu upplýsingum rannsóknaraðila hellti maðurinn eldsneyti, sem talið er vera bensín, yfir stúlkuna.

Eftir það dýfði maðurinn pappírum í sama eldfima vökva og kveikti í þeim áður en hann kastaði þeim að stúlkunni, sem varð samstundis alelda.

Hann hlaut sjálfur reykeitrun og er undir læknishendi á sama sjúkrahúsi, undir lögreglueftirliti.

Átti að vera undir vernd félagsþjónustu

Fjölmiðlar á Spáni greina frá því að stúlkan hafi nýverið yfirgefið vistheimili fyrir ólögráða einstaklinga til að búa með manninum.

Þau höfðu aðeins búið saman í nokkrar vikur áður en árásin átti sér stað.

Hún var í umsjá yfirvalda á Kanaríeyjum og samkvæmt heimildum hafði hún flúið frá opinberu athvarfi til að búa hjá manninum.

Slökkvilið og sjúkralið var kallað út af nágranna sem varð var við reyk og eld í húsinu.

Vegna snöggra viðbragða tókst að bjarga lífi stúlkunnar, í það minnsta tímabundi, og flytja á sjúkrahús í sérútbúinni sjúkrabifreið.

Málið rannsakað sem kynbundið ofbeldi

Spænsk yfirvöld hafa staðfest að málið sé til rannsóknar sem mögulegt heimilis- og kynbundið ofbeldi.

Verið er að undirbúa mögulegan flutning stúlkunnar á sérhæfða brunadeild í Sevilla, ef ástand hennar leyfir.

Lögreglan hefur ekki útilokað fleiri handtökur í málinu.

Var með virka brottvísunarskipun á sér

Sá handtekni hafði dvalið í móttökumiðstöð fyrir hælisleitendur og var með virka brottvísunarskipun sem ekki hafði enn verið framkvæmd og er því ólöglegur í landinu.

Hann kom til Spánar sjóleiðis í byrjun júní.

Málið hefur vakið mikla reiði og umræðu á Spáni um aðgang að aðstoð fyrir ólögráða einstaklinga í viðkvæmri stöðu, sem og um eftirlit með brottvísunum.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing