Hugsanlega óheppnasta barn veraldar er fætt

Breska klámstjarnan Bonnie Blue, sem hefur byggt frægð sína á öfgakenndum kynlífsuppátækjum, hefur tilkynnt fæðingu fyrsta barns síns.

Nafn og kyn barnsins hafa ekki verið gefin upp og andlit þess er afmáð á myndum og myndskeiðum sem hún hefur birt.

Auglýsing

Bonnie, sem heitir réttu nafni Tia Billinger, segist hafa gengist undir keisaraskurð. Hún sagði sig og barnið vera við góða heilsu eftir aðgerðina.

Fulltrúi hennar staðfesti um helgina að henni liði vel.

Klámstjarnan Bonnie Blue í lífstíðarbann: „Nýjasta uppátækið of ógeðslegt, jafnvel fyrir klámsíðu“

„Og þá erum við orðin 1.058“

Bonnie birti myndskeið sem sýnir meðgönguna, komuna á sjúkrahúsið og loks hana sjálfa með barnið í fanginu.

„Og þá erum við orðin 1.058,“ skrifaði hún við myndskeiðið.

Talan vísar til þess að Bonnie segist hafa sofið hjá 1.057 körlum á tólf klukkustundum í umdeildu kynlífsuppátæki í London.

Setti heimsmet í hópreið er hún lagðist undir rúmlega þúsund karlmenn á 12 klukkustundum

Sagðist hafa orðið ólétt eftir fjöldaviðburð

Bonnie hélt því fram fyrr á árinu að hún hefði orðið ólétt í febrúar við tökur þar sem hún segist hafa haft óvarið kynlíf með um 400 körlum.

Hún hefur ekki greint frá því hver faðir barnsins er.

Hún hafði áður sagst eiga von á barninu í lok október eða byrjun nóvember. Miðað við tilkynninguna virðist barnið því hafa fæðst um tveimur mánuðum fyrir tímann.

@bonnie_btsx forget the cliche announcement video lol, my baby is here, super healthy & I’m recovering well! #baby #bonnieblue #babyannouncement #fyp ♬ original sound – bonnie_btsx

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing