Erna Bjarnadóttir skrifar:
Fyrir nokkrum dögum sendi vinur minn mér þýska grein um tjáningarfrelsi. Höfundurinn, þýski fjölmiðlalögfræðingurinn Joachim Steinhöfel, fjallar þar meðal annars um kröfur um að fólk sem tjáir sig á samfélagsmiðlum verði að gera það undir eigin nafni.
Steinhöfel bendir á að nafnleynd geti verið mikilvæg fyrir fólk sem tekur áhættu með því að tjá skoðanir sínar opinberlega. Hann nefnir launþega, uppljóstrara, þolendur heimilisofbeldis og fólk sem heldur fram óvinsælum sjónarmiðum. Síðan koma þrjú orð sem stöðvuðu hagfræðinginn í mér: der Preis des Widerspruchs – verðið á því að andmæla.
Í grein sinni fjallar Steinhöfel um að krafa um að fólk tjái sig undir eigin nafni hækki þetta verð. Margir muni þá kjósa að þegja. Hagfræðingurinn festist auðvitað við orðið verð. Ef það hefur verð að taka afstöðu í opinberri átakaumræðu, hvað felst þá í verðinu? Hver greiðir það? Og hvaða áhrif hefur það á það hverjir ákveða að stíga inn í slíka umræðu?
Ósýnilegi verðmiðinn
Hluti kostnaðarins er augljós. Það tekur tíma að afla upplýsinga, lesa, skrifa, svara, mæta í viðtöl og undirbúa málflutning. En tíminn er aðeins byrjunin. Sá sem tekur opinbera afstöðu undir eigin nafni getur einnig lagt undir mannorð sitt, stöðu á vinnumarkaði, viðskiptasambönd og félagsleg tengsl. Kostnaðurinn þarf ekki allur að falla til. Hættan á að þessi kostnaður falli til getur ein og sér nægt til að hafa áhrif á ákvörðunina.
En á verðmiðanum er líka kostnaður sem er sérstaklega auðvelt að missa sjónar á: verðmæti þess sem einstaklingurinn hefði getað gert í staðinn. Það er fórnarkostnaðurinn.
Tíma sem varið er í eitt verður ekki varið í annað. Kvöld sem fer í grein fer ekki í annað verkefni, fjölskyldu eða hvíld. Sérþekking sem lögð er í opinbera umræðu hefði getað skapað verðmæti annars staðar.
Þarna leynist áhugaverð þversögn. Þeir sem hafa mikið fram að færa í opinbera umræðu geta einmitt verið meðal þeirra sem hafa mikið að leggja undir með þátttökunni. Þekking þeirra og reynsla eru verðmætar í umræðunni vegna þess að þær hafa líka verðmæta notkun annars staðar.
Það er auðvelt að sjá það sem verður til. Greinin birtist, viðtalið fer í loftið og sérfræðingurinn leggur þekkingu sína inn í umræðuna. Það sem sést ekki er það sem varð ekki til á meðan.
Við getum þekkt framlagið vel en verið perfect strangers to the opportunity cost.
Verðmiðinn hefur áhrif á ákvarðanatöku
Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar í sumar, þegar hart var tekist á um mál sem skipti kjósendum nánast í tvo jafnstóra hópa, íhugaði maður sem studdi annan málstaðinn eindregið að koma fram í myndbandi. Hann hætti við eftir að hafa leitað lögfræðiráðgjafar vegna mögulegra áhrifa opinberrar afstöðu á viðskiptasambönd sín.
Enginn bannaði honum að tala. Rétturinn til þess var óskertur. En þegar mögulegur kostnaður við að nýta réttinn kom inn í dæmið breyttist ákvörðunin. Hugsanlegt tap á viðskiptasamböndum hækkaði verðmiðann.
Þetta er líklega kunnuglegra en ætla mætti. Fólk getur haft sterka afstöðu til umdeilds máls án þess að vera tilbúið að tengja nafn sitt, andlit, starf eða fyrirtæki opinberlega við hana. Áður en nokkur grein birtist eða myndavél fer í gang hefur því þegar farið fram ákveðið val.
En hátt verð leiðir ekki sjálfkrafa til þagnar. Á móti kostnaðinum stendur það sem einstaklingurinn telur vera í húfi. Sá sem telur mikið vera í húfi getur verið tilbúinn að bera mikinn fórnarkostnað og taka verulega áhættu. Hann getur jafnvel, þegar allt er um garð gengið, talið að hann myndi taka sömu ákvörðun aftur.
Fórnarkostnaður er því ekki mælikvarði á eftirsjá. Hann segir hvað lét undan þegar einn kostur var valinn fram yfir annan.
Ávinningurinn af þátttökunni er heldur ekki sá sami fyrir alla. Fyrir þann sem gegnir pólitísku embætti eða starfar við opinbera umræðu getur sýnileikinn sjálfur haft faglegt eða pólitískt gildi. Annar getur verið að verja ævistarf, faglegt orðspor eða önnur verðmæti sem hann telur vera í húfi. Sá þriðji fær ef til vill lítinn beinan ávinning af þátttökunni þótt hann beri sjálfur allan tíma- og fórnarkostnaðinn.
Sama athöfnin, að taka opinberlega afstöðu í umdeildu máli, getur því haft gerólíkan kostnað og gerólíkan ávinning eftir því hver á í hlut og hvað hann telur vera í húfi.
Það sem við sjáum í opinberri átakaumræðu er því ekki einfaldlega safn þeirra sem hafa skoðun. Við sjáum þá sem, miðað við kostnaðinn sem þeir bera, það sem þeir telja vera í húfi og þann ávinning sem þátttakan kann að hafa í för með sér, hafa ákveðið að taka til máls. Aðrir sjást ekki.
Hverjir taka til máls?
Þarna verður hugmynd Steinhöfels um verðmiðann á því að andmæla stærri en spurningin um nafnleynd. Hún leiðir að spurningu um þátttöku í opinberri átakaumræðu. Lagalega spurningin er hvort einstaklingnum sé heimilt að taka til máls. Hagfræðilega spurningin er hvað það kostar hann að taka afstöðu, og hvað hann telur vera í húfi.
Tjáningarfrelsið er ókeypis í þeim skilningi að ríkið rukkar þig ekki fyrir að eiga það. Það er alls ekki þar með sagt að það sé ókeypis að nýta það.
Kostnaðurinn við að stíga inn í átakaumræðu er ekki hinn sami fyrir alla og ávinningurinn ekki heldur.
Sumir tala í krafti starfs eða embættis. Aðrir hafa fyrirtæki, háskóla, fjölmiðil, stjórnmálaflokk eða hagsmunasamtök að baki sér. Slíkt bakland eyðir ekki kostnaðinum og getur sjálft skapað aðrar skorður. En það hefur áhrif á hvaða kostnað einstaklingurinn ber sjálfur og hvaða áhættu hann tekur með því að tala. Sá sem stendur einn með nafnið sitt, tímann sinn og þekkinguna ber verðmiðann með öðrum hætti.
Sýnileikinn sjálfur hefur líka mismunandi gildi. Fyrir suma er hann hluti starfsins og getur skapað faglegt eða pólitískt verðmæti. Fyrir aðra tekur sama þátttaka tíma frá annarri vinnu án þess að nokkur sambærilegur ávinningur sé tryggður. Staða einstaklingsins hefur því áhrif á báðar hliðar ákvörðunarinnar.
Umræðan um COVID-19 sýndi eina hlið þessa með athyglisverðum hætti. Í nóvember 2020 sagðist hópur sem gagnrýndi aðferðir stjórnvalda við sóttvarnir hafa orðið var við „mikla tregðu til opinnar umræðu“ meðal sérfræðinga. Hópurinn bauð sérfræðingum að koma sjónarmiðum sínum á framfæri nafnlaust til að draga úr hættu á að þeir yrðu fyrir aðkasti innan eigin starfsstéttar. Á sama tíma sagði sóttvarnalæknir, sem var ósammála hópnum, að fólkið hefði fullt leyfi til að halda skoðunum sínum fram.
Þarna blasir munurinn við. Lagalegi rétturinn til að tala var ekki dreginn í efa. Samt var talið nauðsynlegt að bjóða nafnleynd til að lækka mögulegan kostnað við að nýta hann.
Áður en við sjáum hverjir taka þátt í opinberri átakaumræðu hefur því þegar farið fram sjálfsval. Sumir hafa ákveðið að kostnaðurinn sé meiri en þeir vilja bera. Aðrir telja svo mikið vera í húfi að þeir taka til máls þrátt fyrir hátt verð. Enn aðrir standa frammi fyrir allt öðru hvatakerfi vegna starfs síns, stöðu eða þess ávinnings sem þátttakan kann að færa þeim.
Þeir sem hafa verðmæta sérþekkingu geta jafnframt haft verðmæta aðra notkun fyrir tíma sinn. Þeir sem hafa umfangsmikil starfs- eða viðskiptasambönd geta haft meira að leggja undir. Á hinn bóginn geta þeir sem hafa beinan faglegan eða pólitískan ávinning af sýnileika haft ríkari hvata til þátttöku.
Kostnaður, það sem einstaklingurinn telur vera í húfi og mögulegur ávinningur af þátttöku geta því haft áhrif á framboð og samsetningu radda áður en nokkur þeirra heyrist.
Hver ber kostnaðinn?
Að þessu öllu virtu stendur ein af upphaflegu spurningunum eftir: Hver greiðir verðið?
Sá sem tekur til máls ber stóran hluta kostnaðarins sjálfur. Tíminn er hans, mannorðið hans, starfslega áhættan hans og fórnarkostnaðurinn er hans. En ávinningurinn er flóknari. Hluti hans getur fallið einstaklingnum sjálfum í skaut, til dæmis í formi sýnileika, faglegs orðspors, áhrifa eða þess að verja verðmæti sem honum þykir mikilvægt. Annar hluti getur dreifst miklu víðar.
Upplýsingar, sérþekking, gagnrýni og óþægilegar spurningar geta haft gildi fyrir samfélagið langt umfram hagsmuni þess sem lagði þær fram.
Það þýðir ekki að samfélagið skuldi þeim einstaklingi sem tekur til máls greiðslu. Enginn reikningur verður til við það eitt að einstaklingur nýtir tjáningarfrelsi sitt. En hvorki kostnaðurinn né ávinningurinn hverfur við það. Þeir falla einfaldlega ekki endilega á sömu aðila eða í sömu hlutföllum.
Þarna skilja leiðir lagalegrar og hagfræðilegrar greiningar að nokkru leyti. Lagalega snýst málið um rétt einstaklingsins til að tjá sig. Hagfræðin bætir öðrum spurningum við: Hvaða kostnaður og hvaða hvatar hafa áhrif á það hvort hann nýtir réttinn? Hvað telur hann vera í húfi? Hvað hefur hann að vinna, og hvað hefur hann að missa?
Og þá erum við komin aftur að þremur orðum Steinhöfels: der Preis des Widerspruchs – verðinu á því að andmæla.
Ef verðið hækkar geta sumir kosið að þegja. Aðrir tala þrátt fyrir hátt verð vegna þess að þeir telja mikið vera í húfi. Enn aðrir geta haft beinan ávinning af því að vera sýnilegir þátttakendur.
Þá nægir ekki að horfa aðeins á raddirnar sem heyrast til að skilja opinbera átakaumræðu. Við þurfum líka að spyrja hvaða val hefur þegar farið fram áður en umræðan verður sýnileg.
Hverjir töluðu þrátt fyrir verðið, hverjir höfðu ávinning af því að tala, og hvaða raddir heyrum við aldrei vegna þess að verðið á því að tala varð of hátt?
Höfundur er hagfræðingur.