Spænsk lögregla vísaði á miðvikudag hundruðum innflytjenda út úr yfirgefnu skólahúsnæði í borginni Badalona í Katalóníu.
Samtök leigjenda á svæðinu segja um að ræða stærstu slíku rýmingu sem fram hefur farið á Spáni.
Rýming að skipan borgarstjóra
Innflytjendur höfðu notað bygginguna um árabil og búið í henni án leyfis en hún var áður mentaskóli.
Rýmingin var framkvæmd að skipan borgarstjóra Badalona sem réttlætti aðgerðina með vísan til baráttu gegn ólöglegri starfsemi og afbrotum, sem hann hefur ítrekað tengt við ólöglega innflytjendur.
Hann hefur jafnframt talað fyrir brottvísunum þeirra sem gerast sekir um refsiverð brot.
Árekstrar og óvissa um framhaldið
Skammvinn átök urðu milli óeirðalögreglu annars vegar og aðgerðasinna og innflytjenda hins vegar, en flestir yfirgáfu húsnæðið friðsamlega.
Margir drógu eigur sínar í kerrum eða sátu í götunni með farangur sinn, án þess að vita hvert þeir gætu farið.
„Við verðum að sofa úti“
Boubacar, 25 ára gamall óskráður innflytjandi frá Senegal, segir stöðuna vonlausa.
„Í kvöld ætlum við að sofa á götunni því við vitum ekki hvert við eigum að fara. Eins og þú sérð er rigning og kalt, og við vitum ekki hvað við eigum að gera. Við verðum að sofa svona, þetta er mjög erfitt,“ sagði hann og gaf aðeins upp fornafn sitt.
Spanish police evicted hundreds of migrants from a former high school in Badalona, Spain, after orders from the city’s mayor sparked brief clashes and left many with no housing alternatives https://t.co/UCu9uNndyt pic.twitter.com/T5Ri7uFl2l
— Reuters (@Reuters) December 17, 2025