New Zealand First kynnti á dögunum þingmannafrumvarp sem myndi tryggja að líffræðileg skilgreining á konu og karli sé skilgreind í lögum.
Stór hluti jarðarbúa veit nú þegar hvað það er að vera karl og kona, en einhver hluti hans er heilaþvegin og því þarf lög til að snúa þeim í raunheima að nýju.
Þetta snýst ekki um að vera á móti neinum eða neinu. Þetta snýst um að tryggja að við sem land einbeitum okkur að staðreyndum líffræðinnar og verndum hugtakið ,,kona“ í lögum.
Eini flokkurinn og sá skynsamasti
New Zealand First er eini flokkurinn sem barðist fyrir því að halda körlum frá kvennaíþróttum, halda körlum frá búningsklefum kvenna og stúlkna og við höfum fengið undirskriftir á þessu kjörtímabili þar sem kallað er eftir því að vernda hugtakið ,,kona“ í lögum.
Á þeim tíma var okkur sagt að við færum ofan í ,,kanínuholu“ og við værum ,,á annarri plánetu.“ En ef nýlegir atburðir eru skoðaðir, bæði á alþjóðavettvangi og á Nýja Sjálandi, þá er pendúllinn að sveiflast aftur í átt að heilbrigðri skynsemi og sannar að við höfum rétt fyrir okkur.
Lagafrumvarið til bóta
Lagafrumvarpið (skilgreiningar á konu og karli) mun veita skýrleika og samræmi í nýsjálenskum lögum frá 2019 með því að skilgreina ,,konu“ sem ,,fullorðna líffræðilega konu“ og ,,karl“ sem ,,fullorðinn líffræðilegan karlmann.“
Frumvarpið tryggir að landið okkar fjarlægist ,,woke“ hugmyndafræðina sem hefur læðst inn undanfarin ár og grafið undan vernd, framgangi og öryggi kvenna.
Við lögin frá 2019 munu bætast við tveir kaflar, 13A og 13B, til að standa vörð um kynbundna vernd og mikilvægi kynbundinna réttinda. Lögin okkar ættu að endurspegla líffræðilegan veruleika og veita réttaröryggi.
Þessar skilgreiningar í lögum berjast gegn þeim ,,woke“ öflum og minnihlutahópum sem hafa ýtt undir útskúfun og skautun í samfélaginu.
Þörfin fyrir lagasetningu sem þessa sýnir hversu langt hinir blekktu vinstrimenn hafa leitt okkur sem samfélag. En við berjumst á móti.
Þetta frumvarp er sigur fyrir heilbrigða skynsemi.
Hvað með íslenska þingmenn
Nú má spyrja hvenær skynsemin nær tökum á þingmönnum á Íslandi. Talað er um að við séum svo framarlega í lagasetningum þegar kemur að trans-hugmyndafræðinni, annað hefur nú komið á daginn. Konur töpuðu réttindum í staðinn!
Ef menn kalla það að standa framarlega að hafa réttindi af einum hóp til að færa til annars, er Bleik brugðið.
Þingmenn á hinu háa Alþingi vita ekki hvað kona er og því erum við mjög aftarlega á merinni. En þingmenn geta sýnt skynsemi í orði og á borði, fjarlægt lögin um kynrænt sjálfræði.
Allir einstaklingar, burtséð frá kyni, húðliti, trú, o.fl. eru verndaðir í stjórnarkránni og jafnréttislögum.
Rétt eins og þeir segja á Nýja Sjálandi ,, Lögin okkar ættu að endurspegla líffræðilegan veruleika og veita réttaröryggi.“ Af hverju á ekki að gera það á Íslandi?
Af hverju er almenn skynsemi og raunveruleikinn ekki notaður af íslenskum stjórnmálamönnum þegar kemur að lagasetningum?
Helga Dögg Sverrisdóttir
New Zealand First Introduces Bill Defining ‘Woman’ and ‘Man’ in Law – New Zealand First