„Hvernig getum við þá vitað hvort makinn elski okkur eins og við erum?“

Aðalheiður Jensen veltir fyrir sér nánd í samböndum og þeirri tilhneigingu fólks að telja sig þurfa að vera búið að skilja og vinna úr eigin líðan áður en það hleypir makanum að.

„Við þurfum ekki alltaf að greina líðan okkar áður en við leyfum makanum að koma nær!“ segir Aðalheiður.

Auglýsing

Hún bendir á að með því að halda erfiðari tilfinningum, óöryggi eða viðkvæmni frá makanum geti fólk um leið verið að fela hluta af sjálfu sér.

„Ef við sýnum aðeins þá útgáfu af okkur sem við teljum auðvelt að elska… hvernig getum við þá vitað hvort makinn elski okkur eins og við erum?“

Aðalheiður rekur Tilveruna Barre og yoga stúdíó þar sem hún hefur um árabil unnið með fólki að andlegri og líkamlegri vellíðan. Þar býður hún meðal annars upp á námskeið, fyrirlestra og ráðgjöf.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Aðalheiður Jensen (@allajensen)

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing