Er ESB rétta bandalagið fyrir Dani?
Danir ættu að spyrja sig, óskum við eftir því sem ESB er orðið – óskum við eftir að fara þessa leið. Leiðina sem Ursula von der Leyens fylgir.
ESB er komið langt frá því sem upphaflega var samið um, það sem var grundvöllurinn – t.d. sanngjörn viðskipi, frjáls för manna, vörur og viðskipti.
Segja má að ofur fjárlög ESB segi mikið af sögunni.
Ursula von der Leyen vill fjárlög upp á 15.000 milljarða danskra króna fyrir árin 2028-2034- u.þ.b. 65 % hækkun við núverandi fjárlög.
Hún vill ,,Evrópskan lýðræðisskjöld” sem á útlensku heitir ,,European Democracy Shield”, sem maður ætti að lesa og fræðast um.
Hún vill ,,Sannleiksráðuneyti” eða eins og það er sagt ,,informationsmanipulation.”
Hún vill ,,Evrópska miðstöð fyrir lýðræðislega andspyrnu” en það heitir ,,Europæisk Center for Demokratisk Modstandskraft” til að styðja ,,óháða fréttamennsku” sem Ursula von der Leyens skilgreinir sjálf.
ESB hefur stjórn á fjölmiðlunum. Þeir fá milljarða á næstu fjárlögum- sem aukastuðning, fjármagnað með sköttum.
Ursula vill eigin leyniþjónustu.
Fyrri umboðsmaður ESB segir að hún stjórni ESB eins og einn mafíuforingi. Það þarf blindan mann til að sjá það ekki. Veldi hennar á að vera öll Evrópa og því skutu Íslendingar henni skelk í bringu. Skynsamir.
Norðmenn hafa hafnað ESB tvívegis – skynsemi.
Bóluefnin og plönturnar
Ursula gerði stærsta lyfjasamninginn í sögunni og gat einfaldlega neitað að sýna kvittanirnar fyrir viðskiptasamningum. Samningur sem var aldrei nálægt því að vera stærðfræðilega skynsamlegur. Hvert ESB-ríki fékk allt að 10 skammta af kórónuveiru bóluefni á hvern íbúa sem mætti gefa einu sinni á ári.
Þegar kom að því að skýra hvernig svona skrýið og ógegnsætt samkomulag, sem lyktar langar leiðir, var gert og gat gerst, þá neitaði Ursula, án þess að blikkna, að sýna skjöl eða útskrýra málið á nokkurn hátt.
Og það var málið.
Stór hluti þingmanna í Evrópuþinginu varði hana. Þeir sviku eigin borgara í þágu ESB.
Enginn hefur sagt já við því sem ESB er orðið eða stefnunni sem þeir fylgja.
Borgarar ekki spurðir. Íslendingar höfðu vit á að segja nei við þessu bandalagi. EES samingurinn ætti að vera næstur, enda barn síns tíma. Margir Norðmenn hafa orð á því líka.
Og ESB ætlar ekki að gefa eftir – þvert á móti.
Jafnvel ,,litlir” þættir eins og GMO/NGT sem fjallar um matvæli, tækni, peninga og réttindi neytenda, þá sýnir ESB ótrúlega vanvirðingu gagnvart venjulegum borgurum.
Þess vegna ætlar ESB, frá 2028, að gera erfðabreyttu plönturnar ósýnilegar í búðarhillum. Réttur neytenda til að velja er í engu virtur og ástæðan er ekki einu sinni leyndarmál: ESB fjarlægir GMO merkinguna- því annars myndu fáir ef nokkrir kaupa það. Það hafa menn, í það minnsta Danir, sagt í rúm tuttugu ár.
Þess vegna ætti að spyrja Dani.
Viljum við halda áfram veru okkar í ESB?
Byggt á skrifum Psst-nyt.dk: Facebook
Helga Dögg Sverrisdóttir