Jólalög sem slógu í gegn fyrir áratugum halda áfram að skila gríðarlegum tekjum á hverju ári.
Jólalög sem slegið hafa í gegn geta tryggt listamönnum og lagahöfundum stöðugar tekjur um alla framtíð, sérstaklega í desember þegar streymi og útvarpsspilun nær hámarki.
Mariah Carey trónir á toppnum
All I Want for Christmas Is You kom út árið 1994 og er eitt mest spilaða jólalag heims.
Á hverju ári trónir lagið efst á öllum listum í desember og er reglulega notað í auglýsingum og öðru markaðsefni.
Mat frá Forbes og The Economist bendir til þess að Carey þéni á bilinu 1,8 til 2,24 milljónir punda (330-377 milljónir íslenskra króna) árlega í höfundarlaun af laginu.
Samtals hafði lagið þegar skilað yfir 44,8 milljónum punda (um 7,5 milljarðar) í tekjur árið 2017.
Carey samdi lagið ásamt Walter Afanasieff, sem fær einnig sinn hlut.
Wham! og arfleifð George Michael.
Wham! á eitt þekktasta jólalag sögunnar með Last Christmas.
Lagið var samið af George Michael árið 1984 og endar ár eftir ár meðal mest spiluðu jólalaga heims.
Áætlað er að árleg höfundarlaun nemi um 300 þúsund pundum (Um 50 milljónir íslenskra króna).
Við útgáfu lagsins voru allar tekjur gefnar til hjálparstarfs vegna hungursneyðar í Eþíópíu.
Eftir andlát Michael árið 2016 hefur dánarbú hans haldið þeirri hefð áfram og renna allar tekjur af laginu enn til góðgerðarmála.
Jólalög meðal verðmætustu eigna popptónlistar.
Tekjur af jólalögum koma einkum frá streymisveitum, útvarpsspilun, niðurhali og leyfisveitingum.
Sérstaða þeirra felst í endurtekinni árlegri eftirspurn, ólíkt flestum öðrum vinsælum lögum þar sem áhuginn dofnar fljótt.
Sérfræðingar í tónlistariðnaðinum telja að klassísk jólalög muni halda áfram að skila stöðugum og umtalsverðum tekjum um ókomin ár, jafnvel kynslóðum saman.