Hversu mikið ofbeldi er ásættanlegt verð?

Þegar upp er staðið snýst deilan um hælis- og flóttamannastefnu Evrópu ekki lengur um hvort hún hafi skaðað samfélögin sem tóku við fólkinu. Sá skaði ætti að vera öllum augljós og blasir við okkur á nær öllum mælanlegum kvörðum.

Spurningin er hvort fólk telji þann skaða ásættanlegt verð fyrir að hjálpa þeim sem komu.

Auglýsing

Þessar tölur tala sínu máli: Fjárhagslega hefur þetta verið afleit stefna. Áhrif hennar á mennta- og heilbrigðiskerfin eru mjög sýnileg. Húsnæðismarkaðurinn er í molum í mörgum löndum og þessi þáttur spilar stórt hlutverk í sumum þeirra, þótt áhrifin séu auðvitað mismikil eftir löndum.

Kynferðisofbeldi stór partur

En verst af öllu er líklega stóraukin glæpatíðni, ekki síst þegar kemur að ofbeldis- og kynferðisbrotum.

Fæstir reyna að þræta fyrir þennan hluta nema þeir sem búa í helli með bæði sólgleraugu og eyrnahlífar á sér, og það er auðvelt að rífa málflutning þeirra í sundur á nokkrum sekúndum.

Deilan snýst einfaldlega um það hvort stefnan hafi verið þess virði.

Var kostnaðurinn þess virði?

Við þurfum að spyrja okkur sjálf hvort það sé kostnaðarins virði að hýsa mikinn fjölda fólks sem hafnar gildum samfélaganna sem veita því skjól og lítur jafnvel á heimafólk sem óvin.

„Ég leyfi þessu fólki ekki lengur að gera mér upp annarlegar hvatir að ósekju án þess að svara því í sömu mynt“

Hvort allur sá skaði sem samfélögin og ekki síst fólkið sem í þeim býr hefur orðið fyrir hafi verið þess virði.

Þúsundir nauðgana, hundruð ef ekki þúsundir morða og brot á samfélagssáttmálanum eru ekki þess virði að mínu mati.

Það er ekki lengur gild afsökun að horfa í hina áttina

Þeir sem krefjast óbreytts ástands geta ekki endalaust reynt að afgreiða alla gagnrýni sem rasisma eða hatur. Þeir verða að horfast í augu við afleiðingarnar og axla ábyrgð á þeirri stefnu sem þeir styðja.

Þeir kalla þá sem vilja vernda samfélögin sín öllum illum nöfnum og gera þeim upp verstu mögulegu hvatir: rasisma, hatur og hvaða öðru nafni sem þeim dettur í hug að beita.

Ég leyfi þessu fólki ekki lengur að gera mér upp annarlegar hvatir að ósekju án þess að svara því í sömu mynt.

Það er löngu kominn tími til að beita þeirra eigin mælikvarða á þá sjálfa. Ef sá sem vill stöðva þessa stefnu er sjálfkrafa rasisti og hatursmaður, þá er sá sem styður áframhaldandi stefnu, vitandi hverjar afleiðingar hennar eru, samkvæmt sömu rökum ekkert annað en nauðgunarsinni, ofbeldissinni og níðingur.

Ég veit að sumt af því fólki sem fengi ekki að koma hingað mun þjást vegna þessa, en ég veit líka að ef nógu margir fá að koma eru það innfæddir sem þjást í staðinn. Reynslan hefur sýnt þetta aftur og aftur.

Á hvaða tímapunkti verður þessi stefna óverjandi?

Sömu aðferðir og notaðar voru til að þagga niður pakistönsku nauðgunargengin

Í skýrslu rannsóknar undir formennsku Ruperts Lowe er áætlað að minnst 250.000 ungar breskar stúlkur hafi orðið fórnarlömb svokallaðra nauðgunar- og tælingargengja. Nákvæmur heildarfjöldi er óþekktur, enda var skráningu brotanna stórlega ábótavant og yfirvöld brugðust ítrekað þeirri skyldu sinni að safna nauðsynlegum upplýsingum.

Það þótti svo ljótt að tala um kynþátt og trú nauðgaranna, og hundruð þúsunda ungra stúlkna þurftu að greiða verðið fyrir dyggðaskreytingu þessa fólks.

Fólk sem í dag vill þagga niður umræðuna um þetta viðurstyggilega ofbeldi beitir sömu aðferðum og sömu rökum og beitt var til að þagga niður umræðuna um pakistönsku nauðgunargengin í Bretlandi. Þegar litið er til baka er sú þöggun eitt ógeðslegasta og stærsta hneykslismál í sögu landsins!

Enginn vill kannast við það í dag að hafa verið einn af þeim sem reyndu að þagga málið niður, enda ekki öfundsverð staða að vera í. Enginn vill taka ábyrgð á því að þessi þöggun átti sér stað.

En við erum að sjá fólk beita sömu rökum í dag.

Og í þetta skiptið getum við ekki stungið hausnum í sandinn.

Jón Þormar Pálsson

Höfundur er fimm barna faðir og nöldrari

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing