Hvetur já-sinna til að nýta akstur Áfram Íslands á kjördag – Og kjósa síðan öfugt

Einstaklingur hvetur þá sem ætla að kjósa já í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu til að nýta sér akstursþjónustu Áfram Íslands, fá far á kjörstað og kjósa síðan þvert á afstöðu samtakanna.

Hvatningin birtist í opna Facebook hópnum „Já við ESB-viðræðum“. Þar skrifaði Grétar Mar Baldvinsson:

Auglýsing

„Hvet alla JÁ-ara til að nýta sér þetta og láta Áfram Ísland skutla ykkur á kjörstað, svo að sjálfsögðu kjósum við JÁ á þeirra kostnað.“

Áfram Ísland hefur auglýst að þeir sem þurfa far á kjörstað geti skráð sig í akstursþjónustu samtakanna.

Fékk litlar undirtektir

Báðar hliðar baráttunnar hafa hvatt til skemmtilegra og drengilegrar umræðu og þetta mun líklega seint teljast til slíks. Hugmyndin virðist þó ekki hafa fallið í sérstaklega frjóan jarðveg. Þegar færslan hafði staðið inni í hópnum í um klukkustund hafði hún ekki fengið miklar undirtektir.

Ekkert bendir því til þess á þessum tímapunkti að margir hyggist nota þessa aðferð.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing