Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, gagnrýndi Samfylkinguna í sérstakri umræðu á Alþingi í dag um stöðu barnafjölskyldna. Sagði hann frammistöðu flokksins í málaflokknum vera slaka og aðgerðir hans hafa bitnað sérstaklega á barnafjölskyldum. Hann bætti svo við að hann væri ekki kominn til að biðja Samfylkinguna um að gera meira, heldur væri nær að flokkurinn tæki sér hlé frá málefnum barnafjölskyldna.
Í ræðu sinni sagði Snorri að það sem mest bæri á í störfum þingsins væru skattahækkanir sem legðust þungt á barnafjölskyldur, á sama tíma og ríkisútgjöld hefðu aukist verulega í þágu annarra hópa. Slík útgjaldaaukning héldi að hans mati verðbólgu og háum vöxtum gangandi, sem væru að sliga heimili landsins.
Foreldraorlof og hugmyndafræði
Snorri gagnrýndi einnig ríkisstjórnina fyrir að neita nýbökuðum foreldrum um að skipta foreldraorlofi frjálslega á milli sín. Sagði hann þá ákvörðun byggða á hugmyndafræðilegum forsendum fremur en hagsmunum barnafjölskyldna og að réttara væri að falla frá slíkum takmörkunum.
Leikskólamál í Reykjavík
Þá vék Snorri að stöðu mála í Reykjavíkurborg. Þar sagði hann fjölskyldur fresta eða hætta við barneignir vegna óvissu um leikskólapláss. Þrátt fyrir skort á fjármagni í leikskólamálum benti hann á að borgin hefði varið milljörðum króna í að breyta gamalli kynlífstækjaverslun í leikskóla, meðal annars með kostnaðarsömum lausnum á borð við torfþök.
Leiðbeiningar um barnaafmæli
Að lokum gagnrýndi Snorri að Reykjavíkurborg hefði falið mannréttindasviði borgarinnar að semja leiðbeiningar um kynjaskiptingu barnaafmæla. Sagði hann slíkt ekki til þess fallið að bæta hag barnafjölskyldna, heldur dæmi um að áherslur væru rangar.
„Þá fyrst vænkast hagur fjölskyldnanna“
Snorri lauk máli sínu á því að segja frammistöðu Samfylkingarinnar í málefnum barnafjölskyldna ekki hafa verið fallega. Hann ítrekaði að raunveruleg breyting gæti fyrst orðið ef flokkurinn drægi sig í hlé frá málaflokknum, því þá fyrst gæti hagur barnafjölskyldna á Íslandi farið að vænkast.