Genspect og America First Policy Institute eru með viðburði í tilefni hans. Alþjóðafulltrúi LGB samtakanna tekur þátt í viðburðunum eftir að hafa setið fund í gærdag með fulltrúum Judiciary House Committee á Bandaríkjaþingi um stöðu Íslands í málaflokknum og öðru tengt borgararéttindum á borð við tjáningarfrelsi, félagafrelsi, fjölmiðlafrelsi, trúfrelsi og fl.
Detrans Awareness Day minnir á að til eru einstaklingar sem telja sig hafa flækst inn í hugmyndakerfi sem lofaði lausnum en skilaði í staðinn djúpstæðum afleiðingum, bæði líkamlegum og andlegum. LGB samtökin telja að samfélaginu beri skylda til að hlusta á frásagnir þessa hóps, ekki með útúrsnúningum eða þöggun, heldur með alvöru, ábyrgð og vilja til að draga lærdóm af því sem miður hefur farið.
Staða Íslands og notkun kynþroskahamlandi lyfja
Í dag er staðan sú að Íslendingar ávísa kynþroskahamlandi lyfjum til líkamlega heilbrigðra ungmenna mest allra þjóða, miðað við fóilksfjölda. Flest siðmenntuð ríki hafa hætt notkun þeirra þar sem virkni þeirra er ekki gagnreynd.
LGB samtökin líta á transferli barna sem bælingarmeðferðir þar sem allt slíkt ferli telst til ógagnreyndra meðferða og beinast aðallega að ungmennum sem skv. öllum gagnreyndum rannsóknum vaxa úr grasi sem fullorðnir samkynhneigðir einstaklingar – oft á einhverfu rófi.
LGB samtökin fagna umræðu um svokallaðar bælingarmeðferðir og kalla eftir heildstæðri úttekt
LGB samtökin fagna því að loks sé komin fram opin og nauðsynleg umræða um brot á almennum hegningalögum í tengslum við svokallaðar bælingarmeðferðir, í kjölfar umfjöllunar RÚV og Vísis og viðtals við kanslara kaþólsku kirkjunnar, Jakob Rolland.
Viðbrögð Samtakanna ’78 við þeirri umfjöllun sýna jafnframt hversu eldfimt þetta mál er orðið og hversu erfitt reynist fyrir suma að ræða það af yfirvegun og á málefnalegum grunni.
Gagnrýni á lagasetningu
LGB samtökin (áður Samtökin 22) hafa frá upphafi bent á að sú löggjöf sem sett hefur verið á þessu sviði sé gölluð. Þar hefur verið farin sú leið að setja víðtæk og óskýr refsiákvæði inn í almenn hegningarlög, án þess að nægilega hafi verið gætt að grundvallarkröfum refsiréttar um skýrleika, fyrirsjáanleika og afmörkun refsiábyrgðar.
Slík lagasetning er hættuleg í réttarríki, ekki síst þegar hún opnar á geðþótta, pólitíska túlkun og réttaróvissu í málaflokki sem þegar er þrunginn tilfinningum og hugmyndafræðilegum átökum.
Þessi gagnrýni LGB samtakanna hefur ekki verið hrakin. Þvert á móti tók refsiréttarnefnd dómsmálaráðuneytisins undir þessi sjónarmið og benti á annmarka laganna. Það ætti að vera mikið áhyggjuefni að viðvörunum um veikleika refsiákvæða hafi verið ýtt til hliðar á sama tíma og þrýst var á um lagasetningu með siðferðilegum upphrópunum í stað vandaðrar lagasmíðar.
Kalla eftir heildstæðri úttekt
LGB samtökin styðja heildstæða úttekt á svokölluðum bælingarmeðferðum á Íslandi.
Slík úttekt má þó ekki verða þröng, sértæk eða pólitískt stýrð. Hún verður að taka til allra þeirra aðstæðna þar sem börn og ungmenni kunna að verða fyrir þrýstingi, mótun eða inngripum sem byggja á ótraustum eða ógagnreyndum forsendum.
Það á ekki aðeins við um hefðbundin tilvik sem hafa verið rædd undir merkjum bælingarmeðferða, heldur einnig ógagnreyndar meðferðir og inngrip innan heilbrigðiskerfisins og á vettvangi skóla, félagsmiðstöðva og hagsmunasamtaka.
Vernd barna og ungmenna
Börn og ungmenni eiga rétt á vernd gegn hvers kyns skaðlegum tilraunum fullorðinna til að móta sjálfsskilning þeirra, líkama eða framtíð á grunni tískustrauma, hugmyndafræði eða félagslegs þrýstings.
Það er hvorki frjálslyndi né framfarahugsun að láta viðkvæma hópa bera afleiðingar af ógagnreyndum nálgunum sem síðar kunna að reynast hafa valdið alvarlegu og jafnvel óafturkræfu tjóni.
Kalla eftir stillingu í umræðunni
LGB samtökin hvetja jafnframt til stillingar í umræðunni. Of lengi hefur þetta mál einkennst af upphrópunum, tilfinningahlaðinni orðræðu og siðferðilegri sýndarmennsku sem hefur þrengt að málefnalegri umræðu.
Þegar svo háværir hagsmunaaðilar gera tilraun til að loka á gagnrýnar spurningar, draga allar efasemdir undir fordóma eða gera lögfræðilega og faglega umræðu tortryggilega, er hætta á að samfélagið bregðist þeim sem helst þurfa á skýrleika, vernd og ábyrgð að halda.
Það er kominn tími til að ræða þessi mál af festu, heiðarleika og ábyrgð. Vernd barna og ungmenna verður að byggjast á gögnum, fagmennsku og skýrum lagalegum mörkum, ekki á hugmyndafræðilegum þrýstingi, hræðslu við umræðu eða pólitískri meðvirkni.
LGB samtökin munu áfram standa vörð um þá meginreglu að mannréttindi, réttaröryggi og barnavernd verði ekki fórnað fyrir tíðaranda eða hugsanatæmandi slagorð.
Höfundur er alþjóðafulltrúi LGB samtakanna
Eldur Smári Kristinsson