Íbúar í Gufunesi segja bílastæðavandann orðinn óbærilegan – Segja borgina hunsa áhyggjur þeirra og sekta íbúa kvöld eftir kvöld

Íbúar í Gufunesi í Grafarvogi lýsa yfir miklum áhyggjum af bílastæðaskorti og segja borgaryfirvöld hafa brugðist þeim. Þeir segja að kvöld eftir kvöld mæti stöðumælaverðir í götuna og sekti tugi manns, þrátt fyrir að íbúar hafi enga raunhæfa valkosti til að leggja löglega.

Í umræðu í hópnum Íbúar í Grafarvogi lýsa tugir íbúa reiði og uppgjöf gagnvart borgaryfirvöldum.

Auglýsing

Samkvæmt íbúum hafa allt að 70 bílar fengið sekt á einu kvöldi, sem nemur 700 þúsund krónum.

Ef slíkt gerðist á hverju kvöldi í heilan mánuð væri um 21 milljón króna tekjur í sektum.

Segja nóg pláss fyrir fleiri stæði

Íbúar í Jöfursbás, þar sem vandinn er hvað mestur, segja að borgin hafi verið ítrekað beðin um úrbætur, meðal annars að stækka malarplanið við götuna eða bæta við bílastæðum.

Íbúarnir telja nóg rými á svæðinu til að leysa vandann á einfaldan hátt, en að engin svör hafi borist þrátt fyrir endurteknar fyrirspurnir.

Verið er að byggja mikið á svæðinu og sjö nýjar blokkir eru á lokastigi.

Íbúar segja að þegar þær fyllist muni ástandið versna enn frekar.

Samgöngur taldar ófullnægjandi

Íbúar benda einnig á að almenningssamgöngur á svæðinu séu mjög takmarkaðar.

Strætó stoppistöð er í Spöng, um 20 mínútna gang frá Jöfursbás.

Einn íbúi segir frá því hvernig hann hafi eftir 12 klukkustunda vinnudag þurft að taka strætó heim til sín og þurfti að skipta tvisvar um vagn og svo bíða í 20 mínútur eftir leigubíl í kuldanum sem endaði á að leigubíllinn kom aldrei og hann endaði gangandi heim.

Íbúar ræða vandann opinberlega

Margir benda á að aðeins hafi verið byggð 0,3 stæði á hverja íbúð í nýjum húsum og að skipulagið geri engar raunhæfar ráðstafanir fyrir fjölskyldur í úthverfi sem treysta á bíl til daglegra ferða.

Aðrir segja borgina hafa synjað tillögum um að láta Strætó keyra styttri hring um svæðið með leið 31, sem nú þegar fer þar fram hjá.

Íbúar hafa enga skýringu á því af hverju slíkt hafi ekki verið reynt.

Óánægja beinist að borgarstjórn

Íbúar beina gagnrýni sinni að meirihlutanum í borgarstjórn og nefna sérstaklega fulltrúa Samfylkingar og Pírata.

Þeir saka borgina um að taka enga ábyrgð á ástandinu, hunsa ábendingar og bregðast ekki við fyrirsjáanlegum vandamálum sem skapast af þéttingu byggðar.

Sumir segja að meðferð borgarinnar á íbúum sé valdníðsla, að sektirnar virki eins og tekjuöflun og að lífsgæði íbúa hafi versnað hratt.

Eins og sjá má neyðast íbúar til að leggja ólöglega eða mjög langt í burtu

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing