ICE útsendarinn Jonathan Ross, sem skaut Renee Good til bana í Minneapolis í síðustu viku, hlaut innvortis blæðingu í kjölfar atviksins, samkvæmt upplýsingum sem CBS News hefur eftir bandarískum embættismönnum.
Óljóst er hversu alvarleg blæðingin var.
Heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna hefur staðfest að Ross hafi slasast, en ekki veitt nánari upplýsingar um eðli eða alvarleika meiðslanna.
Myndskeið frá vettvangi sýna Ross ganga frá staðnum eftir skotárásina.
Ekki snúið aftur til starfa
Samkvæmt CBS hefur Ross ekki snúið aftur til starfa síðan atvikið átti sér stað, en ekki liggur fyrir hver ástæðan er.
Kristi Noem, innanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafði áður staðfest að Ross hafi verið fluttur á sjúkrahús eftir skotárásina og útskrifaður samdægurs.
Hún sagði einnig að Ross hefði fengið nokkrar líflátshótanir í kjölfar atviksins.