Idaho innleiðir lög sem heimila dauðarefsingu fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum

Ríkisstjóri Idaho, Brad Little, hefur undirritað ný lög sem heimila dauðarefsingu fyrir þá sem dæmdir eru fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum.

Löggjafarsamkoman í Idaho samþykkti frumvarp 380 með miklum meirihluta.

Auglýsing

Öldungadeildin greiddi atkvæði 30 gegn 5 þann 24. mars, eftir að fulltrúadeildin hafði samþykkt frumvarpið einróma þann 17. mars.

Dauðarefsing verði lágmarksrefsing

Samkvæmt nýju lögunum verður lágmarksrefsing 25 ár fyrir þá sem eru sakfelldir fyrir alvarlega ósæmilega hegðun gagnvart börnum á aldrinum 13–16 ára.

Fyrir nauðgun á barni 12 ára eða yngra er lágmarksrefsingin 30 ár, eða dauðarefsing, ef tveimur eða fleiri skilyrðum er mætt sem nefnd eru í frumvarpinu.

Lögin skilgreina yfir tugi slíkra aðstæðna, þar á meðal ítrekuð brot gegn sama barni.

Frumvarpið var flutt af þingmanninum Bruce Skaug (R-12), sem sagði Idaho eitt af mildustu ríkjunum gagnvart barnaníðingum.

Hann segir að lögin styrki rétt barna og færi fórnarlömbunum vald.

„Hvað er meira traumatískt en að vera grimmilega nauðgað?“ spurði Skaug. „Þessi lög snúast um fórnarlambið, þau gefa börnum rödd.“

Ekki allir sáttir

Samtök gegn dauðarefsingum, þar á meðal Death Penalty Action, gagnrýndu lögin og töldu að þau gætu verið ómannúðleg og hugsanlega ekki í samræmi við stjórnarskrá.

„Við erum að tala um að biðja barn sem hefur þegar orðið fyrir djúpum skaða að endurlifa atburðinn opinberlega, oft gegn fjölskyldumeðlimi,“ sagði Abraham Bonowitz, framkvæmdastjóri samtakanna.

Bonowitz benti einnig á að Hæstiréttur Bandaríkjanna hafi hingað til hafnað dauðarefsingum nema í morðmálum.

Skaug sagðist vonast til þess að málaferli gegn lögunum rati til Hæstaréttar svo ríkin fái vald til að beita dauðarefsingu í alvarlegum málum sem þessum.

Lögin taka gildi 1. júlí 2025. Florida er nú eina ríkið með sambærileg lög, en fimm önnur ríki eru að íhuga svipaðar aðgerðir.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing