Imane Khelif viðurkennir að vera með svokallað SRY gen sem oftast er tengt Y litningi – Segist hafa lækkað testósterón magn sitt fyrir Ólympíuleikana

 Alsírski hnefaleikakappinn Imane Khelif, sem vann gull í kvennaflokki á Ólympíuleikunum í París, segist hafa farið í hormónameðferð til að lækka testósterónmagn sitt fyrir keppnina. Þetta sagði Khelif í viðtali við franska íþróttatímaritið L’Equipe .

Khelif segir lækna hafa fylgst náið með meðferðinni og segist hafa farið í hana til að uppfylla skilyrði fyrir keppni.

Segist ekki vera trans

Auglýsing

Khelif hafnar því að vera trans kona. Khelif segist hafa alist upp sem stúlka og alltaf borið sig þannig. Khelif lýsir líkama sínum sem náttúrulegum og segist ekki hafa breytt sér.

Khelif viðurkennir að vera með svokallað SRY gen, sem oftast tengist Y litningi, en segir það vera hluta af sínu „náttúrulega ástandi.“

Einnig segist Khelif að vilji sé fyrir hendi til að undirgangast öll próf sem alþjóðasamtök hnefaleika krefjast fyrir næstu leika enda sé þegar búið að senda þeim öll læknisgögn og hormónamælingar.

Khelif hefur ekki keppt síðan í París eftir að hafa verið neitað um þátttökurétt á mótum eftir að nýtt litningapróf var tekið upp.

Stefnir á að verja gullið

Markmið Khelif er að keppa á Ólympíuleikunum í Los Angeles 2028 og reyna að verja titil sinn en næsta skref eftir það sé að tryggja sér atvinnumannaleyfi í Frakklandi.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing