Maður sem sagður er vera innflytjandi var handtekinn eftir að hafa stungið mann í miðborg Dublin síðdegis á laugardag.
Árásin átti sér stað fyrir framan fjölda vegfarenda á einni fjölförnustu götu borgarinnar.
Sat blóðugur á gangstéttinni
Í myndbandinu sést særði maðurinn sitja á gangstéttinni alblóðugur meðan lögreglumaður hlúir að honum.
Annar maður liggur á jörðinni í handjárnum skammt frá.
Fórnarlambið var flutt á sjúkrahús og er ekki talinn vera í lífshættu.
Virðist vera af erlendum uppruna
Hinn handtekni er maður á fimmtugsaldri og virðist af myndefninu vera af erlendum uppruna. Visegrád 24 og fleiri stórir samfélagsmiðlareikningar segja hann innflytjanda og fullyrða að maðurinn sem var stunginn sé innfæddur Íri.
Ekki hefur verið greint frá því hvað varð til þess að átökin brutust út, hvort mennirnir þekktust eða hvort maðurinn hafi verið stunginn af handahófi.
Rannsókn málsins stendur yfir og ekki hefur verið tilkynnt um ákæru.
Another Irishman has just been stabbed by a usual suspect in Dublin, broad daylight on a Saturday.
Europe is under attack. pic.twitter.com/mBURipvwsQ
— Enough is Enough 🇬🇧 🇷🇺 🏴✝️ (@FreedomsBritish) September 7, 2026