Ísland og landgrunnsréttindin ná yfir stærra svæði en landsvæði fjögurra Norðurlanda samanlagt

Þegar Ísland sjálft og hafsbotninn þar sem ríkið fer með landgrunnsréttindi eru lögð saman fæst um 1,26 milljón ferkílómetra svæði. Það er stærra en landsvæði Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar samanlagt. Samanburðurinn nær þó ekki til landgrunns hinna ríkjanna – og segir ekkert um hvort auðlindirnar undir íslenska hafsbotninum reynist vinnanlegar.

Ísland er 103 þúsund ferkílómetrar að flatarmáli. Það er talan sem flestir Íslendingar læra í skóla og sjá á hefðbundnum landakortum.

Auglýsing

En hún sýnir aðeins eyjuna sem rís upp úr Norður-Atlantshafinu.

Undir hafinu umhverfis Ísland nær hafsbotnssvæði íslenskra landgrunnsréttinda yfir um 1,16 milljónir ferkílómetra, samkvæmt útreikningum sem byggja á opinberum landamæra- og landgrunnsgögnum. Þegar Ísland sjálft er lagt við fæst um 1,26 milljón ferkílómetra samanlagt svæði.

Til samanburðar eru landsvæði Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar samtals um 1,22 milljónir ferkílómetra. Svalbarði og Jan Mayen eru þá talin með Noregi.

Ísland og landgrunnsréttindasvæðið eru þannig samanlagt um 42 þúsund ferkílómetrum stærri en landsvæði þessara fjögurra ríkja. Munurinn jafngildir nánast flatarmáli Danmerkur.

Hér er þó ekki verið að bera saman landgrunn ríkjanna. Ef landgrunn hinna Norðurlandanna væri einnig tekið með yrði niðurstaðan allt önnur. Norska landgrunnið eitt er til dæmis rúmlega tvær milljónir ferkílómetra.

Þetta er heldur ekki samanburður á fullvalda landsvæðum. Ísland fer ekki með almennt fullveldi yfir öllu hafinu fyrir ofan landgrunnið. Réttindin lúta fyrst og fremst að hafsbotninum, jarðlögunum undir honum og þeim auðlindum sem þar kunna að finnast.

Það eru engu að síður gríðarlega umfangsmikil og hugsanlega verðmæt réttindi fyrir þjóð sem telur innan við 400 þúsund manns.

Landgrunn er ekki það sama og efnahagslögsaga

Efnahagslögsaga Íslands nær almennt allt að 200 sjómílum frá grunnlínum landsins, nema þar sem hún mætir lögsögum nágrannaríkja. Hún er um 760 þúsund ferkílómetrar að stærð, eftir því hvaða gögn og mæliaðferðir eru notuð.

Innan hennar hefur Ísland réttindi yfir lifandi auðlindum sjávar, svo sem fiskistofnum, auk auðlinda hafsbotnsins.

Landgrunnsréttindin eru þrengri. Þau varða hafsbotninn og jarðlögin undir honum en ekki almenna stjórn á sjónum fyrir ofan.

Samkvæmt hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna á strandríki landgrunnsréttindi að minnsta kosti út að 200 sjómílum. Ef sýnt er fram á að náttúrulegt landgrunn ríkisins teygi sig lengra geta réttindin náð út fyrir efnahagslögsöguna.

Það er ástæða þess að Ísland hefur í áratugi safnað jarðfræðilegum og jarðeðlisfræðilegum gögnum um Reykjaneshrygg, Ægisdjúp og Hatton–Rockall.

Hvað gæti leynst undir hafsbotninum?

Undir þúsundum metra af sjó liggja setlög, sprungin basaltlög, kulnaðar eldstöðvar og virkir úthafshryggir. Sums staðar geta setlögin verið mörg hundruð metra eða jafnvel nokkurra kílómetra þykk.

Á sambærilegum svæðum annars staðar í heiminum hafa fundist:

  • olía og jarðgas í setlagadældum;
  • kopar, sink, járn, silfur og gull í málmsúlfíðum;
  • mangan, nikkel og kóbalt í skánum og útfellingum;
  • mikill jarðhiti við eldvirka úthafshryggi;
  • berglög sem geta geymt eða bundið koltvísýring;
  • sérstæð djúpsjávarvistkerfi með mögulegt vísindalegt og líftæknilegt gildi.

Engin þessara upptalninga sannar að vinnanlegar auðlindir finnist á íslenska landgrunninu.

Stærð svæðisins segir heldur ekkert ein og sér um verðmæti þess. Rétt jarðfræðileg skilyrði þurfa að vera fyrir hendi, auðlindin þarf að finnast í nægilegu magni og tæknilega þarf að vera hægt að nálgast hana án óhóflegs kostnaðar eða óásættanlegs umhverfistjóns.

Það sem Ísland hefur tryggt sér er rétturinn til að rannsaka þessa möguleika og ráða hugsanlegri nýtingu síðar.

Málmar við neðansjávareldstöðvar

Reykjaneshryggurinn er hluti Atlantshafshryggjarins, þar sem jarðskorpuflekar gliðna og nýr hafsbotn myndast.

Sjór getur leitað niður um sprungur í hafsbotninum, hitnað við heitt berg og kviku og streymt aftur upp. Heiti vökvinn ber með sér efni úr berginu sem falla út þegar hann blandast köldum sjó.

Þannig geta myndast svokölluð fjölmálmasúlfíð við og undir hafsbotninum.

Slíkar útfellingar geta innihaldið kopar, sink, blý, járn, silfur og gull. Alþjóðahafsbotnsstofnunin hefur lýst sams konar málmríkum myndunum á úthafshryggjum annars staðar.

Ekki hefur þó verið sýnt fram á vinnanlega málmnámu á íslenska hluta Reykjaneshryggjar.

Flestar þekktar málmsúlfíðútfellingar á hafsbotni eru raunar tiltölulega litlar þótt málmstyrkur geti verið hár. Þýska hafrannsóknastofnunin GEOMAR segir að slíkar útfellingar séu yfirleitt afmarkaðar jarðmyndanir og sjaldan risavaxin samfelld námusvæði.

Til að meta raunverulegt umfang þyrfti frekari kortlagningu, sýnatöku og boranir með sérhæfðum rannsóknarskipum og neðansjávarförum.

Kóbalt og málmar orkuskiptanna

Á hafsbotni annars staðar í heiminum finnast einnig manganhnyðlingar og málmríkar skánir á neðansjávarfjöllum.

Þær geta geymt mangan, nikkel, kopar, kóbalt og fleiri efni sem notuð eru í rafhlöður, rafbúnað, vindmyllur og varnartækni.

Bandaríska haf- og loftslagsstofnunin NOAA telur fjölmálmshnyðlinga, kóbaltríkar járn- og manganskánir og málmsúlfíð meðal helstu mögulegu málmauðlinda djúpsjávarbotnsins.

Ekki liggur fyrir staðfest magnmat á slíkum auðlindum á íslenska landgrunninu. Það væri því rangt að segja að Ísland sæti á þekktri gull-, kopar- eða kóbaltnámu.

En íslensku réttindin gætu skipt miklu ef tæknin þróast og rannsóknir leiða síðar í ljós að vinnanlegar málmauðlindir finnist á svæðinu.

Olía og gas á Drekasvæðinu?

Drekasvæðið liggur norðaustur af Íslandi við Jan Mayen-hrygginn, yst í íslensku efnahagslögsögunni. Sá hluti sem hefur helst verið tengdur við olíu- og gasleit er um 43 þúsund ferkílómetrar – álíka stór og Danmörk.

Jarðfræðileg uppbygging hluta svæðisins hefur verið talin líkjast svæðum þar sem olía og gas hafa fundist. Rannsóknarleyfi voru því veitt á síðasta áratug og miklar vonir bundnar við svæðið.

En vísbendingar eru ekki það sama og olíufundur.

Engin staðfest olíu- eða gaslind í vinnanlegu magni hefur fundist á íslenska hluta Drekasvæðisins. Rannsóknir hafa raunar gefið tilefni til varfærni.

Í svari á Vísindavef Háskóla Íslands kemur fram að leit að ummerkjum um olíu- og gasleka árið 2010 hafi skilað slökum niðurstöðum. Það gæti bent til lítilla líkinda á virku kolvetnakerfi á suðurhluta Jan Mayen-hryggjarins.

Drekasvæðið er því mögulegt rannsóknarsvæði – ekki þekkt olíulind.

Noregur sýnir hversu staðbundnar olíulindirnar eru

Norska landgrunnið er rúmlega 2,04 milljónir ferkílómetra, nær sexfalt stærra en samanlagt landsvæði meginlands Noregs, Svalbarða og Jan Mayen.

Olía og gas finnast þó ekki jafnt undir öllu þessu svæði.

Norski hluti Norðursjávar er um 142 þúsund ferkílómetrar, aðeins um sjö prósent af norska landgrunninu. Þar eru engu að síður 69 olíu- og gasvinnslusvæði í rekstri.

Í Noregshafi eru 25 vinnslusvæði og þrjú í Barentshafi, samkvæmt yfirliti Norskpetroleum.no. Lindirnar safnast því á afmörkuð svæði þar sem réttu jarðfræðilegu skilyrðin fara saman.

Sama á við um Grand Banks undan Nýfundnalandi. Þar eru fjórar þekktar vinnslueiningar – Hibernia, Hebron, Terra Nova og White Rose – innan miklu stærra hafsvæðis.

Punktur á korti merkir því staðfesta lind eða vinnslumannvirki. Hann merkir ekki að allur hafsbotninn í kring sé fullur af olíu.

Gæti hafsbotninn orðið gríðarleg kolefnisgeymsla?

Ein áhugaverðasta mögulega nýting íslenska landgrunnsins felst ekki í því að taka efni upp úr jörðinni heldur koma því niður í hana.

Basalt getur hvarfast við koltvísýring og breytt honum í stöðuga steind. Aðferðin er þegar þekkt frá Carbfix-verkefninu á landi, en yngri basaltlög undir hafsbotninum gætu boðið upp á mun meira geymslurými.

Rannsókn íslenskra vísindamanna frá 2016 áætlaði að fræðilegt geymslurými í basalti innan íslensku efnahagslögsögunnar gæti numið allt að 7.000 gígatonnum af koltvísýringi.

Það er fræðilegt mat, ekki staðfest vinnslugeta. Frekari staðbundnar rannsóknir, tilraunaboranir og áhættumat væru nauðsynleg áður en hægt væri að meta raunhæfa nýtingu.

Ef aðeins lítið brot rýmisins reyndist tæknilega og fjárhagslega nýtanlegt gæti kolefnisgeymsla engu að síður orðið ein verðmætasta framtíðarnýting íslenska hafsbotnsins.

Jarðhiti undir þúsundum metra af sjó

Eldvirkir úthafshryggir geyma einnig mikla varmaorku. Við virka hryggi getur sjór hitnað djúpt í jar jarðskorpunni og streymt aftur upp um jarðhitaop.

Í framtíðinni gæti mögulega orðið hægt að nýta slíkan jarðhita til raforkuframleiðslu, vetnisframleiðslu eða annars iðnaðar.

En hindranirnar eru miklar. Vatnsdýpi, þrýstingur, tærandi sjór, fjarlægð frá landi og viðhald neðansjávarbúnaðar gera slíka vinnslu mun flóknari en jarðhitavinnslu á landi.

Jarðhitinn er því áhugaverður fræðilegur möguleiki, ekki tilbúin orkuauðlind.

Lífríkið gæti verið verðmætara ósnert

Djúpsjávarbotninn er ekki lífvana eyðimörk.

Við neðansjávarfjöll, hraunmyndanir, kaldsjávarkórala og jarðhitaop geta þrifist sérstæð vistkerfi. Lífverur sem lifa við myrkur, kulda, mikinn þrýsting eða háan hita geta jafnframt haft vísindalegt og líftæknilegt gildi.

Í NovasArc-verkefninu vinnur Hafrannsóknastofnun með norskum og færeyskum vísindamönnum að kortlagningu viðkvæmra vistkerfa á norðlægum hafsvæðum. Þar er meðal annars að finna kaldsjávarkórala og djúpsjávarsvampa sem vaxa hægt og geta verið mjög viðkvæmir fyrir raski.

Verðmæti landgrunnsins felast því ekki aðeins í því sem hægt væri að vinna úr því. Sum svæði gætu verið verðmætari sem ósnortin náttúra, rannsóknarsvæði eða hluti af vistkerfi Norður-Atlantshafsins.

Tímamót á Reykjaneshrygg

Í mars 2025 náðist mikilvægur áfangi þegar landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna lauk umfjöllun um endurskoðaða greinargerð Íslands vegna Reykjaneshryggjar.

Greinargerðin náði til landgrunnsins vestan, sunnan og suðaustan við hrygginn, langt út fyrir 200 sjómílur.

Niðurstaðan staðfesti í meginatriðum jarðfræðilegan grundvöll íslensku sjónarmiðanna eftir áratugalangan undirbúning. Utanríkisráðherra sagði af því tilefni að fullveldisréttindi Íslands yfir landgrunninu á Reykjaneshrygg væru tryggð til framtíðar.

Sameinuðu þjóðirnar „gáfu“ Íslandi þó ekki svæðið. Landgrunnsréttindin leiða af hafréttarsamningnum, en nefndin metur vísindalegan grundvöll ytri markanna.

Reykjaneshryggurinn er samfellt jarðfræðilegt fyrirbæri. Á kortum getur réttindasvæðið engu að síður virst skipt vegna þess að svæði innan og utan 200 sjómílna eru sýnd sérstaklega.

Hatton–Rockall enn óafmarkað

Á Hatton–Rockall-svæðinu hafa Ísland, Danmörk fyrir hönd Færeyja, Bretland og Írland sett fram skarandi kröfur um landgrunnsréttindi.

Landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna sker ekki úr um mörk milli ríkja. Ríkin verða sjálf að semja um endanlega skiptingu svæðisins.

Því er ekki rétt að telja allt íslenska kröfusvæðið á Hatton–Rockall sem óskoraðan hluta íslenska landgrunnsins. Það þarf að sýna sérstaklega á kortum sem óafmarkað svæði með skarandi kröfum.

Ef samningar færa Íslandi síðar stóran hluta svæðisins gæti endanlegt umfang íslenskra landgrunnsréttinda orðið meira en sú áætlun sem hér er lögð til grundvallar.

Norræni samanburðurinn – og mikilvægi fyrirvarans

Ísland og hafsbotnssvæði íslenskra landgrunnsréttinda eru samanlagt um 1,26 milljónir ferkílómetra.

Landsvæði Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar eru samtals um 1,22 milljónir ferkílómetra, þegar Svalbarði og Jan Mayen eru talin með Noregi.

Íslenska samanlagða talan er því um 42 þúsund ferkílómetrum hærri.

Samanburðurinn nær aðeins til landsvæða ríkjanna fjögurra, ekki landgrunns þeirra. Hann ber einnig saman ólík réttindi: fullvalda landsvæði annars vegar og Ísland ásamt hafsbotni þar sem ríkið fer með afmörkuð auðlindaréttindi hins vegar.

Samanburðurinn sýnir því umfang íslenska svæðisins en ekki að Ísland sé bókstaflega stærra ríki en hin fjögur samanlagt.

Grænland og Færeyjar eru ekki með í útreikningnum. Hér er miðað við hin fjögur sjálfstæðu norrænu ríkin. Norræna samstarfssvæðið nær einnig til Grænlands, Færeyja og Álandseyja, en Grænland eitt er rúmlega 2,1 milljón ferkílómetrar.

Hefur ESB augastað á íslenska hafsbotninum?

Víðfeðmt landgrunn, staðsetning Íslands milli Evrópu og Norður-Ameríku og mögulegar auðlindir hafsbotnsins auka stefnumótandi mikilvægi landsins.

Evrópusambandið hefur lagt síaukna áherslu á að tryggja aðgang að mikilvægum hráefnum fyrir orkuskipti, rafhlöður, tölvutækni og varnariðnað. Sambandið vill jafnframt draga úr innflutningsháð sinni, meðal annars gagnvart Kína.

Það er því eðlilegt að spyrja hvort mögulegir málmar, kolefnisgeymsla, orka, fiskimið og staðsetning Íslands á Norður-Atlantshafi geri landið enn áhugaverðara fyrir ESB.

Engar opinberar heimildir sýna þó að landgrunn Íslands eða ófundnar auðlindir þess séu sérstök ástæða fyrir áhuga innan sambandsins á nánari tengslum við Ísland.

ESB-aðild myndi heldur ekki færa sambandinu eignarhald á íslenska landgrunninu. Ísland yrði áfram strandríkið og landgrunnsréttindin íslensk. Leyfisveitingar og nýting þyrftu hins vegar að samræmast því sameiginlega regluverki sem þá gilti.

ESB-vinkillinn er því réttmæt geopólitísk spurning – en ekki staðfest skýring sem hægt er að setja fram sem staðreynd.

Réttindi sem framtíðin gæti verðlagt

Enginn veit enn hversu verðmætt íslenska landgrunnið er.

Undir hafsbotninum gætu leynst málmar sem verða mikilvægir í tækni framtíðarinnar. Þar gæti verið gríðarlegt geymslurými fyrir koltvísýring, nýtanlegur jarðhiti eða lífríki með ófyrirséð vísindalegt gildi.

Einnig er mögulegt að stórir hlutar svæðisins reynist ekki nýtanlegir með fyrirsjáanlegri tækni.

Ísland hefur því ekki tryggt sér þekkta gullnámu eða olíulind. Það hefur tryggt sér réttinn til að rannsaka, vernda og taka síðar ákvarðanir um auðlindir á einu víðfeðmasta hafsbotnssvæði sem svo fámenn þjóð fer með réttindi yfir.

Eyjan sem sést á kortinu er aðeins hluti af sögunni.

Flatarmál íslensku svæðanna er áætlað út frá opinberum landamæra- og landgrunnsgögnum. Nákvæm niðurstaða getur breyst eftir mæliaðferð, endanlegum afmörkunum og samningum við nágrannaríki. Hatton–Rockall er ekki talið að fullu með vegna skarandi krafna. Umfjöllun um náttúruauðlindir lýsir jarðfræðilegum möguleikum en ekki staðfestum eða vinnanlegum námum og lindum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing