Umræðan um greiðslustöðvun leigumiðlunarinnar Sólarmegin hefur tekið nýja stefnu eftir að fjöldi Íslendinga á Spáni steig fram og segjast hafa varað við fyrirtækinu og eiganda þess áður. Nokkrir fullyrða að færslum þar sem fólk lýsti slæmri reynslu hafi ítrekað verið eytt úr Facebook hópum Íslendinga á Spáni.
Stjórnandi eins hópsins hafnar því að stjórnendur tengist fyrirtækinu og segir Facebook og sjálfvirkt stjórnendakerfi síðunnar oft fjarlægja færslur sem fá margar tilkynningar. Gagnrýnendur segja stjórnendur þó ekki geta firrt sig ábyrgð með því að vísa á sjálfvirkar stillingar þegar afleiðingarnar séu þær að viðvaranir hverfi og fleiri lendi í viðskiptum við sömu aðila.
Segist vita um þrjú dæmi
Jóhann Guðjónsson vakti sérstaka athygli á málinu í opna Facebook hópnum Íslendingar á Spáni Costa Blanca eftir að RÚV greindi frá því að að minnsta kosti tíu Íslendingar hefðu greitt fyrir leiguhúsnæði sem þeir fengu ekki afhent.
„Hvernig getur staðið á því að þegar fólk er að vara við svona leigusvikum og/eða slæmri reynslu af íslenskum fasteignasölum eða leigumiðlunum, bæði hér í þessum hópi og inni á Íslendingum á Spáni, þá eyðir stjórnandi færslunni stuttu eftir að hún er birt?“ spurði Jóhann.

Hann segist sjálfur vita um þrjú slík tilfelli og telur stjórnendur hópanna bera ábyrgð á því að mikilvægar viðvaranir hafi ekki fengið að standa.
Jóhann segir að fólk þurfi framvegis að birta slíkar viðvaranir einnig í stórum Facebook hópum á Íslandi, þar sem stjórnendur hópa Íslendinga á Spáni geti ekki fjarlægt þær.

„Var kjaftaður í kaf og færslan fjarlægð“
Maron Bergmann Jónasson tók undir gagnrýnina og sagðist hafa reynt að vara við Samúel Jón Samúelssyni, eiganda Sólarmegin, eftir viðskipti við hann síðastliðið vor.
„Ég reyndi að vara við þessum þrjót í vor eftir okkar kynnum af honum þar sem ekkert stóðst. Var kjaftaður í kaf og færslan fjarlægð,“ skrifaði Maron.
Hann beindi jafnframt spurningum að stjórnendum hópsins og Húseigendafélaginu og spurði hvers vegna viðvörun hans hefði ekki fengið að standa.
Fleiri hafa lýst svipaðri reynslu. Einn þátttakandi sagðist hafa varað við Samúel fyrir um ári en færslunni verið eytt. Annar skrifaði:
„Ég hef margoft varað við þessum manni en alltaf er því eytt út.“
Þá sagði einn þátttakandi að það hefði mögulega mátt forða mörgum frá tjóni ef fyrri viðvaranir hefðu fengið að standa.
Stjórnandi hafnar tengslum við Sólarmegin
Guðmundur Guðmundsson, sem svaraði fyrir hönd stjórnenda hópsins, bað fólk um að saka þá ekki um tengsl við Samúel eða Sólarmegin.
Hann sagði ýmsar skýringar geta verið á því að innlegg og athugasemdir hverfi. Facebook geti fjarlægt efni sjálfkrafa með svokölluðu Admin Assist kerfi og einnig geti efni horfið eftir að margar tilkynningar berast.
Guðmundur sagði stjórnendur jafnframt stundum fá hótanir vegna færslna og þurfa að bregðast við þegar fólk setji fram ásakanir um nafngreinda einstaklinga sem ekki eru sannanir fyrir. Áður fyrr hafi verið hægt að birta færslur án samþykkis og þá hafi fólk meðal annars sett inn vafasamt efni að næturlagi.
Þegar Maron spurði hvort Samúel hefði hótað stjórnendum vegna færslu hans svaraði Guðmundur neitandi.
„Neibb, aldrei fengið hótun frá viðkomandi. Ég nefni þetta sem dæmi. En oftast er ástæðan sú að það koma X margar tilkynningar og þá eyðir Facebook út sjálfkrafa,“ skrifaði hann.
Segir sjálfvirkar stillingar ekki afsökun
Jóhann sagði skýringuna ekki fría stjórnendur ábyrgð. Ef sjálfvirkt kerfi hefði ítrekað fjarlægt viðvaranir hefði átt að breyta stillingunum og koma í veg fyrir að slíkt héldi áfram.
Hann lýsti einu dæmi þar sem færsla um slæma reynslu af fasteignasala eða leigumiðlara hefði fengið að standa í nokkrar klukkustundir. Á þeim tíma hefðu margir tekið undir frásögnina og lýst sambærilegri reynslu áður en færslan hvarf.
Jóhann sagðist ekki sjá hvernig fjöldi athugasemda frá fólki sem væri sammála færslunni ætti að verða til þess að sjálfvirkt kerfi fjarlægði hana.
Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvaða færslur voru fjarlægðar, hver fjarlægði þær eða hvort það var gert handvirkt eða sjálfkrafa.
Fleiri lýsa meintri reynslu af fyrirtækinu
Í annarri umræðu um málið hafa fleiri stigið fram og lýst meintri reynslu af Sólarmegin. Þar er meðal annars fullyrt að fólk hafi greitt fyrir leiguhúsnæði sem það fékk ekki afhent.
Einn maður segist vita um íbúðareigendur sem hafi komið að eignum sínum og fundið þar fólk með leigusamninga sem þeir könnuðust ekki við. Kona segir nákominn ættingja sinn hafa afhent Samúel lykla að íbúð vegna fyrirhugaðrar sölu en eignin hafi þess í stað verið leigð út án vitneskju eigandans.
Nútíminn tekur fram að þessar frásagnir hafa ekki verið staðfestar með gögnum og eru fullyrðingar einstaklinganna sem birta þær.
Tíu Íslendingar í húsnæðisvanda
RÚV greindi frá því að Guðrún Svava Pálmarsdóttir, 65 ára, hefði greitt Sólarmegin 2.500 evrur, jafnvirði um 360 þúsund króna, fyrir tveggja mánaða dvöl á Playa Flamenca á Alicante.
Þegar hún kom til Spánar fékk hún íbúðina ekki afhenta. Hún segir níu aðra Íslendinga vera í sömu stöðu og að hún hafi sjálf staðið uppi húsnæðislaus eftir að hafa fengið tímabundin afnot af annarri íbúð í eina viku.
Samúel staðfesti við RÚV að íslenskt móðurfélag Sólarmegin, Sammlind ehf., væri komið í greiðslustöðvun. Hann sagðist vinna að því að aðstoða fólkið og að stefnt væri að því að endurgreiða leiguféð. Að öðru leyti vísaði hann á lögmann sinn.
Berglind Ýr Gylfadóttir, fyrrverandi eiginkona Samúels og fyrrverandi eigandi Sólarmegin, hefur tekið fram að hún tengist hvorki núverandi rekstri fyrirtækisins né þeirri stöðu sem nú er komin upp.