Myndband sem birtist á TikTok í dag og hefur nú þegar hlotið yfir 1.000 „likes“ á innan við sjö klukkustundum hefur vakið mikla athygli og áhyggjur.
Í myndbandinu sést íslenskur einstaklingur klæða sig upp sem Charlie Kirk, sem var nýlega skotinn til bana í Utah, og lýsir fagnaðarlátum yfir dauða hans.
Það var aðgangurinn Glufa á X sem fyrst benti á myndbandið.
Myndbandið er sviðsett þannig að viðkomandi leikur Kirk með ámálað sár og gerviblóð á hálsi, í samræmi við áverkana sem hann hlaut í árásinni.
Undir spilast lag með textanum: „bang, my shit bang, bang bang bang“.
Í athugasemdum undir myndbandinu birtast fjölmargar færslur sem virðast lýsa stuðningi við ofbeldið:
- „It’s what she deserves“
- „CHARLIE KIRK STILL ALIVE?!?!?! FUCK!! Ætli maður þurfi ekki að taka round two“
- „BANG BBANGG PERIOD“
Höfundur myndbandsins skrifar einnig:
„Það er ekkert við þetta myndband sem er ekki accurate, nema kannski að hann er ekki faqqi og hann var ekki svona skinny, soo.“
Þegar aðrir notendur benda á að sýna virðingu við látna manneskju og aðstandendur hennar svarar hann:
„Þangað til fjölskyldan hans sér þetta og byrjar að grenja yfir því skal ég kannski gera það, en þangað til á þessi fjölskylda enga virðingu skilið nema kannski barnið I guess, but aint nobody give a shit um þetta barn soo.“
Þegar spurt er hvort hann sé að gera grín svarar hann: „Duhh, það er kinda the point.“
Getur talist refsivert samkvæmt lögum
Samkvæmt 100. gr. c almennra hegningarlaga er óheimilt að hvetja til, réttlæta eða dásama alvarleg ofbeldisbrot, þar með talið hryðjuverk og manndráp.
Brot gegn ákvæðinu getur varðað allt að sex ára fangelsi.
Í því samhengi má velta upp hvort framferði sem þetta, þar sem hæðst er að þekktu morði og því fagnað opinberlega, gæti fallið undir þetta ákvæði.
Engar upplýsingar liggja fyrir um hvort lögregla hafi hafið rannsókn vegna málsins.
@raivo.is Tryna cancel me yeah? Gen Z me brah😇 #fyp #foryoupagе #fyrirþig #fordig #charliekirk ♬ original sound – jacvkkson.mp3