Íslendingur vann til silfurverðlauna á X-Games í Aspen

Halldór Helgason bætti enn einni rósinni í hnappagatið við frábæran feril sinn þegar hann tryggði sér silfurverðlaun á X-Games leikunum í Aspen í Bandaríkjunum í nótt.

Hann keppti í greininni „Knuckle Huck“ og hafnaði þar í öðru sæti.

Auglýsing

Halldór Helgason

Óhefðbundin keppni þar sem hugmyndaflugið ræður

Í Knuckle Huck snýst keppnin ekki um hefðbundið risastökk heldur að framkvæma sem frumlegustu stökk og brellur.

Keppendur fá stig fyrir sköpunargáfu, erfiðleika stökks, stíl, frumleika og hvernig lending tekst.

Tvöfalt stökk dugði langt

Halldór vakti mikla athygli með tvöföldu heljarstökki sem skilaði honum öðru sætinu.

Sigurinn fór hins vegar til Finnans Rene Rinnekangas sem var hæstur í einkunnagjöf dómara.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Halldór stendur á verðlaunapalli í þessari grein, en hann vann einnig silfur í Knuckle Huck á leikunum árið 2023.

Þá á hann einnig gullverðlaun að baki, en þau vann hann í Big Air keppninni árið 2010.

Myndband af stökki Halldórs úr keppninni í nótt er hægt að sjá hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing