Íslenska torfæran byrjar af fullum krafti um helgina – Sjáðu helstu tilþrifin frá því í fyrra

Sindratorfæran fer fram næsta laugardag 3 maí í Tröllkonugili rétt austan Hellu. frá kl 10 til 16. en þar eru kjör aðstæður fyrir áhorfendur að tilla sér í brekkurnar og fylgjast með þessum 1000 hestafla græjum reyna fyrir sér í sandbrekkum, börðum, fleytingum á ánni og í mýrinni.

29 keppendur eru skráðir til leiks í 2 flokkum.

Auglýsing

Nokkrir sem eru að keppa í sinni fyrstu keppni aðrir sem hafa verið með í ára raðir og enn aðrir sem eru að koma til baka eftir mislöng hlé.

Á meðal keppenda er íslandmeistarinn Ingvar Jóhannesson auk 5 annara íslandsmeistara.

Að öðrum ólöstuðum má nefna Gísla Gunnar Jónsson, Snorra Þór Árnason og Þór Þormar Pálsson.

Aldrei fleiri keppendur

Aðeins 6 sinnum í sögu Hellutorfærunnar hafa keppendur verið 29 og yfir og má segja að það séu rúmlega helmingur þeirra sigurstranglegir og allflestir staðið á verðlaunapalli.

Spennan er mikil eins og sést hefur undanfarna daga hjá keppendum

Það eru Flugbjörgunarsveitin á Hellu og Akstursíþróttanefnd Heklu sem standa að keppninni sem hefur verið haldin nær óslitið síðan 1973.

Torfæra er skemmtun fyrir alla fjölskylduna síðustu ár hafa um 5000 þúsund manns verið á svæðinu og allir haft gaman að því að skoða græjurnar og sjá þær svo takast á við brautirnar.

Bein útsending verður frá keppninni á Youtube og Rúv 2 fyrir þá sem ekki komast á staðinn.

Auðvelt að finna á youtube með því að leita eftir Sindratorfæran live.

Allar upplýsingar má finna á facebook viðburðinum Sindratorfæran á Hellu 2025.

Eins er áhugaverður hópur sem heitir torfæruáhugamenn þar er hægt að fylgjast með keppendum í undirbúningnum.

Hér fyrir neðan má sjá helstu tilþrif frá sömu torfæru í fyrra.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing