Íslenskur aðgerðasinni segir að búið sé að drepa svo marga í Súdan að blóðbaðið sjáist á google maps

Aðgerðasinninn Pétur Eggerz birti í dag myndband á Instagram þar sem hann gagnrýnir alþjóðlegt sinnuleysi gagnvart átökunum í Súdan.

Í myndbandinu segir hann að lík sjást á Google Maps, slíkur sé fjöldinn sem búið er að myrða á síðustu vikum.

„Hvar eru raddirnar ykkar?“

Auglýsing

Pétur spyr hvar mótmælin og rödd almennings séu þegar kemur að ofbeldinu í Súdan.

„Hvar eru raddirnar ykkar? Hvar er baráttan fyrir Súdan? Af hverju eru allir svona hljóðir?“ spyr hann í myndbandinu.

Fullyrðir að fjármagn frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum viðhaldi blóðugum átökum

Í myndbandinu heldur hann því fram að Sameinuðu arabísku furstadæmin fjármagni aðgerðir sem viðhaldi flæði gulls frá Súdan til furstadæmanna.

„Þetta eru United Arab Emirates að fjármagna. Þetta er allt gert til þess að viðhalda streymi af gulli frá Súdan til UAE,“ segir Pétur og bætir við að íslensk stjórnvöld hafi ekkert látið sig málið varða.

„Ekki eitt einasta fokkin orð“

„Við höfum ekki heyrt eitt orð frá utanríkisþjónustu Íslands, ekki eitt einasta fokkin orð,“ segir hann og bendir á myndir sem hann segir sýna fjölda líka og blóðpolla í Súdan.

„Hér hafa þúsundir manna verið drepnir á síðustu viku,“ bætir hann við.

 

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Pétur Eggerz (@petur_eggerz)

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing