Bandaríska sjónvarpsstöðin ABC hefur ákveðið að taka spjallþátt Jimmy Kimmel, Jimmy Kimmel Live!, af dagskrá um óákveðinn tíma eftir að Kimmel lét umdeild ummæli í þættinum sínum um morðið á íhaldssinnanum Charlie Kirk.
Kimmel, sem er 57 ára gamall, hefur sætt harðri gagnrýni eftir að hann gagnrýndi stuðningsmenn Donalds Trump og sagði þá reyna að „safna pólitískum stigum“ eftir dauða Kirk, sem var skotinn til bana á háskólasvæðinu Utah Valley University í Orem í Utah 10. september.
„Við slógum nýtt met í siðleysi met um helgina þegar MAGA klíkan reyndi að láta eins og þessi strákur sem drap Charlie Kirk væri ekki einn af þeim,“ sagði Kimmel í upphafsræðu sinni í þættinum á mánudagskvöld.
ABC staðfesti við dagblaðið The Post miðvikudaginn 17. september að þátturinn yrði „tímabundið tekinn af dagskrá“.
Ekki hefur verið gefið upp hvenær eða hvort þátturinn snúi aftur.
Málið heldur áfram að vekja mikla athygli í bandarískum fjölmiðlum og samfélagsmiðlum, þar sem sumir verja Kimmel með vísan til tjáningarfrelsis, á meðan aðrir kalla eftir enn harðari afleiðingum.