Jólamarkaðurinn í þýsku borginni Magdeburg verður ekki haldinn í ár vegna öryggisástæðna eftir hryllilega bílaárás í desember í fyrra, þar sem sex manns létust og hundruð slösuðust.
Borgarstjóri Magdeburg greindi frá ákvörðuninni í dag og sagði að markaðurinn fengi ekki rekstrarleyfi þar sem ekki væri hægt að tryggja öryggi gesta.
Samkvæmt þýsku fréttastofunni DPA barst borginni bréf frá yfirvöldum þar sem bent var á skort á nauðsynlegum öryggishindrunum til að koma í veg fyrir að ökutæki kæmust inn á markaðssvæðið.
Borris sagði þó að borgin gæti ekki borið ábyrgð á slíku og að um væri að ræða skyldu ríkisins og hryðjuverkalögreglu.
„Allir sérfræðingar eru sammála um að aðgerðir gegn hryðjuverkum séu á ábyrgð ríkisins, ekki skipuleggjenda jólamarkaða,“ sagði hún eftir sérstakan fund borgarstjórnar.
Árásarmaðurinn játaði fyrir dómi
Ákvörðunin kemur aðeins degi eftir að réttarhöld hófust yfir Taleb al-Abdulmohsen, sádi arabískum geðlækni sem játaði að hafa ekið svörtum BMW jeppa inn í mannfjölda á markaðnum í desember 2024.
Hann kom til Þýskalands sem flóttamaður árið 2006.
Samkvæmt ákæru ók hann tveggja tonna, 340 hestafla bíl sínum viljandi inn í mannfjöldann.
Þýsk yfirvöld hafa viðurkennt að bíll sem átti að vera hindrun fyrir akandi bíla hafi verið á röngum stað og því hafi árásin verið möguleg.
Fleiri jólamörkuðum aflýst víða um Þýskaland
Magdeburg er stærsti jólamarkaðurinn í sambandslandinu og dregur að sér um tvær milljónir gesta ár hvert.
Það er því mikið áfall fyrir svæðið að honum sé aflýst og fyrir Þýskaland almennt, þar sem jólamarkaðir eru rótgróin hefð.
Fleiri borgir hafa tilkynnt svipaðar ákvarðanir.
Jólamörkuðum í Overath og Kerpen hefur verið aflýst í ár vegna aukins öryggiskostnaðar og nýrra reglna um hindranir og gæslu.
Yfirvöld þar segja ekki lengur hægt að standa undir þeim kostnaði sem fylgir auknum kröfum um vernd gegn bílaárásum og öðrum hryðjuverkum.
Áhyggjur víða en hefðin heldur áfram
Stærri markaðir í borgum eins og Dresden, Frankfurt og Köln munu þó halda starfsemi sinni áfram samkvæmt áætlun, með auknum öryggisráðstöfunum og nýjum tækjum til vöktunar en aðrir eiga eftir að taka ákvörðun.
Árásin í Magdeburg minnir á svipaðan hryðjuverkaviðburð í Berlín árið 2016, þegar 13 manns létust á jólamarkaði í miðborginni.
Þar voru sett lög sem kveða á um skyldu allra þýskra jólamarkaða til að hafa steinsteyptar eða stálsmíðar hindranir, lög sem nú er deilt um hvort hafi verið virt nægilega vel í Magdeburg.