Jón Gnarr, þingmaður og skemmtikraftur, hefur vakið athygli fyrir færslu á Facebook þar sem hann mælir með bókinni The End of Woke eftir Andrew Doyle.
Í færslunni birtir Jón mynd af bókarkápunni og skrifar: „Þetta er nú með áhugaverðari bókum sem ég hef lesið lengi. Andrew er líka mjög athyglisverður gaur. Mæli með!“
Færslan hefur vakið viðbrögð, meðal annars frá Eldi Smára Kristinssyni, formanni Samtakanna 22, sem hefur gagnrýnt svonefnda trans- og „vók“ hugmyndafræði. Hann vakti athygli á færslu Jóns og sagði Andrew Doyle vera persónulegan vin og samstarfsmann sinn.
Eldur spyr hvað sé að gerast
Í færslu sinni spyr Eldur Smári: „Hvað er að gerast hjá gamla Gnarrinum og Viðreisn – er hann að vakna eða er þetta bara brandari?“
Til skamms tíma hefur Viðreisn verið áberandi í stuðningi við hinsegin- og transmálefni. Á liðnu sumri hélt Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra úr röðum flokksins, ræðu í Washington þar sem hún hvatti til harðari aðgerða gegn því sem hún lýsti sem bakslagi í réttindabaráttu hinsegin fólks.
Eldur Smári gagnrýnir þessa þróun og segir hugmyndafræðina hafa haft mikil áhrif innan flokksins. Hann vísar einnig til umræðu á vettvangi allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, þar sem hann segist hafa átt orðastað við þingmenn Viðreisnar um málefnið.
Færslu sinni um ummæli Jóns Gnarr lýkur hann á spurningu til þingmannsins:
„Hvernig fer þetta saman, Jón? Fær þessi færsla þín að standa, eða verður þú tekinn á teppið?“