Jón Steinar Gunnlaugsson segir lækni hafa sýnt sér dónaskap og svo rekið sig út

Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, segir frá því á Facebook að honum hafi nýverið verið vísað út af læknastofu eftir að hann gerði athugasemd við tafir á viðtali hjá sérfræðilækni.

Samkvæmt frásögn hans mætti hann tímanlega, að minnsta kosti tíu mínútum fyrir bókaðan tíma, og beið á biðstofu sem læknirinn deildi með öðrum læknum. Læknirinn hafi hins vegar ekki komið til móts við hann fyrr en um 25 mínútum eftir að viðtalstíminn átti að hefjast.

Gerði athugasemd við tafir

Auglýsing

Jón Steinar segir að þegar hann fékk loks áheyrn hafi hann gert athugasemd við biðina. Hann hafi bent lækninum á að unnt hefði verið að láta starfsmann upplýsa hann um tafir eða bjóða honum nýjan tíma ef ekki væri hægt að sinna honum á tilsettum tíma.

Að hans sögn brást læknirinn illa við og taldi hann sýna frekju með athugasemdinni. „Hann hefði ekki fyrr heyrt slíkar kvartanir sjúklinga í svona tilviki,“ skrifar Jón Steinar og bætir við að hann hafi svarað því til að hann teldi lækninn hafa sýnt sér ókurteisi með því að láta hann bíða án skýringa.

Vísað út án þjónustu

Jón segir að læknirinn hafi í kjölfarið vísað honum á dyr án þess að hann hafi fengið þá læknisþjónustu sem til stóð.

Jón Steinar hvetur fólk til að láta ekki slíkt framferði viðgangast. Hann segir lækninum hafa verið hrokafullan og segir hann hafa sýnt af sér viðhorf sem gefi til kynna að honum sé „allt heimilt í samskiptum við sjúklinga sína“.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing