Kallar eftir skýrri stefnu Háskóla Íslands um málfrelsi

Róbert H. Haraldsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands og fyrrverandi kennslustjóri skólans, skrifaði grein sem fyrst birtist á Vísi þar sem hann hvetur Háskóla Íslands til að taka upp afdráttarlausa stefnu um málfrelsi og hvernig bregðast skuli við þegar mótmæli hindra fræðilega viðburði.

Fyrirlestur felldur niður vegna mótmæla

Tilefni pistilsins er atvik sem átti sér stað 6. ágúst síðastliðinn þegar mótmælendur komu í veg fyrir fyrirlestur prófessors frá Bar-Ilan háskólanum í Ísrael á Þjóðminjasafni Íslands.

Auglýsing

Fyrirlesturinn var á vegum Rannsóknarstofnunar Háskóla Íslands á sviði lífeyrismála (PRICE), en var aflýst þar sem frummælandi og fundarstjóri gátu ekki haldið áfram sökum frammíkalla.

Vísar til Chicago-yfirlýsingarinnar

Róbert bendir á að fjölmargir erlendir háskólar hafi tekið upp svokallaða Chicago-yfirlýsingu um málfrelsi.

Hún kveður á um nær algjört tjáningarfrelsi á háskólasvæðum og undirstrikar að þó meðlimir háskólasamfélagsins megi gagnrýna og véfengja skoðanir annarra, þá sé ekki heimilt að hindra að aðrir geti tjáð sig.

Fimm meginrök fyrir stefnu

Í greininni setur Róbert fram fimm megin rök fyrir því að Háskóli Íslands marki sér slíka stefnu:

  1. Hún standi vörð um málfrelsi sem sé stjórnarskrárvarinn réttur.
  2. Hún tryggi akademískt frelsi kennara og rannsakenda.
  3. Hún verji skólann fyrir gerræðislegum viðbrögðum þegar mótmæli beinast að ólíkum gestum og viðburðum.
  4. Hún styrki orðspor og vinnufrið Háskólans og dragi úr lagalegri áhættu.
  5. Hún minnki álag á kennara og aðra starfsmenn sem annars þyrftu sjálfir að verja rétt sinn til tjáningar.

„Mótmælendur gengu of langt“

Sumir hafa varið mótmælin með því að líta á þau sem sniðgöngu eða ókurteisi.

Róbert segir hins vegar ljóst að þar sem viðburðurinn var á vegum háskólastofnunar og mótmælendur komu beinlínis í veg fyrir að hann gæti farið fram, hafi þeir gengið of langt.

„Skýr og afdráttarlaus stefna á borð við Chicago-yfirlýsinguna undirstrikar að slík framganga sé ólíðandi,“ skrifar hann að lokum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing