Karlar fá ekki að nota kvennaklósett – þó þeir telji sig sérstaka

Frá og með 5. ágúst 2026, er körlum í Bretlandi bannað að nota salerni, búningsklefa og önnur rými sem ætluð eru konum, bæði hjá opinberum og einkareknum aðilum.

Bannið gildir óháð tilfinningum karla, hárgreiðslu eða klæðaburði, og einnig þótt þeir segist skilgreina sig sem konur, „ókynbundin“ (non-binary) eða eitthvað annað.

Auglýsing

Breytingin er mikilvægt skref í þá átt að snúa við löggjöf sem tengist réttindabaráttu þeirra sem styðja transhugmyndafræðina og er sögð afleiðing dóms Hæstiréttur Bretlands (The Supreme Court) sem kveðinn var upp þann 16. apríl 2025.

Samkvæmt texta dómsstólsins neyddist þáverandi forsætisráðherra Keir Starmer, að viðurkenna að konur hafa EKKI getnaðarlim.

Hélt í alvöru að kona sé með typppi

Aumingja Starmer hafði áður, að því er virðist í fullri alvöru, haldið því fram að „1% breskra kvenna séu með getnaðarlim.“  Það væri áhugavert að heyra svarið ef íslenskur blaðamaður hefði þorað að bera sömu spurningu upp við forsætisráðherrann okkar.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir sálfræðingur og fyrrverandi bæjarstjórnarmaður í Kópavogi heldur eins og Streimer að kona geti haft typpi. Það sagði hún við fréttamann Fréttarinnar eftir að skrif um þá skoðun hennar leit dagsins ljós. Sigurbjörg Erla og skoðanabræður hennar brjóta á réttindum stúlkna og kvenna þegar karlmönnum er hleypt inn í einkarými kvenna á þeirri skoðun (ekki staðreynd) að konur geti haft fjölbreytta líkama (lesist með typpi og pung).

Ekkert bakslag

Nú hafa Bretar fært stúlkum og konum það sem þær höfðu, réttinn til að viðhalda sjálfsögðum réttindum sínum. Ekkert bakslag. Leiðrétting. Þeir sem skilgreina sig trans hafa sín einkarými til að nota sem samsvarar eigin kyni eða aðstöðu sem hentar fötluðum.

Dómararnir í Hæstarétti tóku einróma tillit til réttinda og réttaröryggis stúlkna og kvenna, einfaldlega og eðlilega sem afleiðingu af jafn mikilvægu grundvallaratriði og líffræðilegum mun kynjanna.

Heimild

Helga Dögg Sverrisdóttir

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing