Karlmaður í 671. sæti heimslistans rústaði konunni í 1. sæti í „Baráttu kynjanna“ í tennis

Nick Kyrgios sigraði Aryna Sabalenka, 6–3, 6–3 í sýningarleik sem markaðssettur var sem „Battle of the Sexes“ í Dubai á sunnudag.

Viðburðurinn var kynntur sem tilvísun í sögulegan leik ársins 1973 þegar Billie Jean King sigraði Bobby Riggs.

Auglýsing

Kyrgios situr í 671. sæti heimslista karla og hefur lítið getað keppt og æft vegna meiðsla.

Sabalenka er efst á heimslista kvenna.

Þrátt fyrir að vera auglýst sem skemmtun bentu gagnrýnendur á að „Battle of the Sexes“ yfirskriftin gæti dregið úr vægi kvennatennis og gert lítið úr þeirri þróun sem orðið hefur í átt að jafnrétti.

King sagði í viðtali við BBC að þótt heitið væri hið sama skorti leikinn það samfélagslega mikilvægi og þá þýðingu sem viðureign hennar og Riggs hafði á sínum tíma.

Leikreglur sérsniðnar fyrir þessa viðureign

Uppselt var á viðureignina sem fram fór í Coca-Cola Arena og var spilaður eftir sérstökum reglum.

Völlurinn Sabalenka megin var aðeins minni og aðeins ein uppgjöf var leyfð í hverju stigi.

Báðir leikmenn áttu í erfiðleikum með uppgjöfina á köflum, en Kyrgios náði afgerandi forskoti þegar hann vann fyrsta settið.

Í öðru setti lenti Kyrgios undir 1–3 og virtist þreyttur, á meðan Sabalenka nýtti leikhlé til að dansa við tónlist í salnum.

Ástralinn jafnaði hins vegar stöðuna og tryggði sér sigurinn eftir nokkra jafna og spennandi kafla.

Takmörkuð keppnisreynsla Kyrgios

Ólíkt Riggs árið 1973 er Kyrgios enn skráður leikmaður á ATP-mótaröðinni, þó meiðsli í úlnlið og hné hafi sett mark sitt á feril hans síðustu ár.

Hann lék aðeins fimm einliðaleiki á mótaröðinni á árinu 2025.

Leikmenn sáttir við upplifunina

Kyrgios sagði eftir leikinn að hann hefði verið taugaóstyrkur og hrósaði Sabalenka fyrir frammistöðuna.

Sabalenka tók í sama streng og sagðist hafa átt sterkan leik.

Hún taldi sig nú betur þekkja styrkleika og veikleika andstæðingsins og sagðist sannfærð um að næsta viðureign þeirra yrði enn betri.

Keppendur féllust í faðma eftir viðureignina.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing