Karlmaður með kvenmannsnafn í varðhaldi vegna morðs á ungri konu í Svíþjóð

25 ára kona var numin á brott í bænum Rönninge í Svíþjóð um jólahátíðina og fannst síðar myrt eftir umfangsmikla leit í sveitarfélaginu.

Samkvæmt upplýsingum Aftonbladet er Vilma Andersson, 26 ára, grunaður um morðið.

Skráður karlmaður með gamla dóma á bakinu

Auglýsing

Samkvæmt umfjöllun Aftonbladet var hinn grunaði dæmdur í fangelsi fyrir nokkrum árum fyrir tilraun til mannráns á tíu ára stúlku.

Þá bar hann annað nafn.

Eftir þá dómsniðurstöðu hefur viðkomandi skipt um nafn nokkrum sinnum og notar nú kvenkynsnafnið Vilma Andersson.

Sænskir fjölmiðlar greina jafnframt frá því að grunaði hafi fæðst sem karlmaður og sé enn skráður karlmaður í sænskri þjóðskrá.

Aftonbladet greinir frá því að við handtöku hafi grunaði viðurkennt að líkamsleifar sem fundust væru af konunni sem saknað var.

Konan hvarf eftir að hafa verið síðast séð við lestarstöðina í Rönninge aðfaranótt annars í jólum.

Aðstandendur hennar tilkynntu um hvarf hennar þegar hún sneri ekki heim og hófst þá leit lögreglu.

Myndin sem birt var af hinni 25 ára konu sem myrt var. Nafn hennar hefur ekki verið gefið upp af yfirvöldum.

DNA kom upp um hinn grunaða

Samkvæmt Aftonbladet var það DNA á vettvangi sem leiddi lögreglu að hinum grunaða.

Viðkomandi var handtekinn eftir um tíu klukkustunda leit og situr nú í gæsluvarðhaldi grunaður um morð og grófa svívirðingu á líki.

Lögregla telur að konan hafi verið numin á brott við Rönninge-stöðina og flutt á afskekktan stað nokkra tugi kílómetra frá því svæði.

Þar er talið að reynt hafi verið að grafa líkið niður.

Fundur persónumuna og umfangsmikil leit

Áður en leit hófst fundu aðstandendur heyrnartól konunnar um 500 metrum frá lestarstöðinni.

Í kjölfarið hóf lögregla umfangsmikla leit með aðstoð dróna, leitarhunda, þyrlu og sjálfboðaliða.

Tveimur og hálfum sólarhring síðar var staðfest að konan hefði fundist látin.

Á þriðjudag fór lögregla fram á að Vilma Andersson yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing