Danskir læknar taka þátt í alþjóðlegri bylgju sem kynnir „brjóstagjöf“ karla á ungabörnum sem hluta af jafnrétti LGBT-fólks.
Ímyndaðu þér hvaða mann sem er: bróður þinn, föður, samstarfsmann eða nágranna. Hver yrðu ósjálfráðu viðbrögð þín ef hann legði svangt ungabarn að geirvörtunni svo það gæti sogið?
Myndu viðvörunarbjöllurnar hringja?
Hvað ef hann upplifir sig sem konu og gerir þetta sem hluta af nýju „móðurhlutverki“ sínu?
Myndu viðvörunarbjöllurnar samt hringja – eins og þær gera hjá mér, segir greinarhöfundur.
Hringi viðvörunarbjöllur er það vegna þess að við erum transfóbísk, eða vegna þess að við þekkjum þetta sem hegðun sem fer yfir mörk og eru fetisíks?
Þessi atburðarás hefur nýlega verið kynnt af dönskum læknum í tengslum við Copenhagen Pride í ár. Sem hluti af jafnréttisbaráttunni fyrir LGBT+eru tvær danskar Instagram síður á vegum lækna, Lægen om Amning og SundLGBT, sem tekur upp málstað karla sem skilgreina sig konur (trans-konur) það er að segja „brjóstagjafir“ karla.
Síðurnar
Síðan ,,Lægen om Amning” er rekin af starfandi lækni og brjóstagjafaráðgjafa og SundLGBT er hagsmunahópur innan Danska félagsins fyrir almennar lækningar, sem samanstendur af fimm læknum. Samkvæmt eigin vefsíðu vinna læknarnir með þingmanninum Thomas Rohden úr Radikale Venstre og hafa nýlega verið boðin á viðburði bæði hjá jafnréttisráðherranum Ane Halsboe-Jørgensen og heilbrigðisráðherranum Ida Auken. Hér er því ekki um einhvern óþekkta jaðarhópa að ræða.
Í sameiginlegri færslu skrifa þau að „ráðgjöf um brjóstagjöf eða fóðrun sé fyrir alla óháð kyni“ og að framkölluð mjólkurmyndun án meðgöngu sé möguleiki fyrir trans-konur… það er að segja líffræðilega karla.
Barnið gleymist
Þau útskýra að „ráðgjöf um fóðrun eigi að byggjast á shared decision making [sameiginlegri ákvarðanatöku] sem og draumum og markmiðum fjölskyldunnar varðandi fóðrun“. Takið eftir hver er ekki nefndur hér: barnið.
Fjarvera þess segir sína sögu.
Barnið er ekki lengur aðalpersónan. Foreldrar hafa „drauma og markmið“, en ungabörn þarfir – og það ætti að vera sjálfsagt að þær þarfir vegi alltaf þyngra en markmið og draumar karlmanns um að líkja eftir sambandi móður og barns.
Barnið fær ekki lífsnauðsynlega næringu heldur verður þess í stað leikmunur í viðleitni karlmannsins til að tileinka sér kvenkyn. Sú staðreynd að karlmaður hafi „kvenlega kynvitund“ réttlætir ekki athöfnina. Karlmaður getur, óháð sjálfsmynd sinni, auðvitað lagt barn sitt að berum brjóstkassa sínum og veitt því öryggi og umhyggju. Það er á því augnabliki sem hann færir munn barnsins að geirvörtu sinni sem hann sýnir, að mati höfundar, algjöra fyrirlitningu á þeim mörkum sem líffræðin setur honum og setur sjálfan sig framar barninu.
Tökum sem dæmi þessa tilfellaskýrslu: Árið 2024 birtu vísindamenn frá Duke University skýrslu um 50 ára gamla trans-konu (þ.e. karlmann), sem vildi hafa barnabarn sitt á brjósti. Hann vildi upplifa þau tengsl sem hann hafði ekki upplifað með sín eigin fimm börn. Með blöndu lyfja „hafði hann barnabarnið sitt á brjósti“ nokkrum sinnum þegar það var fjögurra mánaða gamalt og vísindamennirnir kynntu þetta sem nýja og árangursríka aðferð fyrir transfólk – þrátt fyrir að „mjólkurmet“ hans væri 30 ml. Húrra!
Mjólk föðurins
„Brjóstagjöf“ transkvenna (þ.e. karla) er ekki náttúrulegt ferli heldur afleiðing mismunandi lyfjablandna: stórra skammta af estrógeni, testósterónhemlum, brjóstapumpum og sérstaklega domperidoni – lyfi gegn ógleði þar sem ein aukaverkun er seyting úr geirvörtum. Það er þessi seyti sem á að leggja að jöfnu við brjóstamjólk.
Domperidon getur borist yfir í barnið og haft áhrif á hjarta þess og lyfið er ekki samþykkt í þessum tilgangi.
Þungaðar konur og konur með barn á brjósti fá ótal fyrirmæli um hvers þær megi neyta. En þegar kemur að körlum sem upplifa sig sem konur er heilsa barnsins skyndilega aukaatriði, ef ekki neðanmálsgrein.
Seytið sem trans-kona/karlmaður getur framkallað úr brjósti sínu tengist ekki neinum lífeðlisfræðilegum endurgjafarbúnaði milli barns og líkama; það aðlagast ekki þörfum barnsins, sem breytast eftir aldri, sólarhringstíma og heilsu, og magnið nær alls ekki nauðsynlegri þörf.
En það skiptir litlu máli í þessari trans-hugmyndafræði; markmið og draumar, you know.
Brjóstagjafasamtökin sem skiptu um stefnu
Þetta gerist ekki bara í Danmörku. Um allan heim hafa samtök og fagfólk tekið upp hugmyndina og trans-konur (þ.e. karlar) sýna stoltir árangurinn.
Stærstu samtök heims um ráðgjöf við brjóstagjöf, La Leche League, voru samtök sem settu konur í miðpunktinn og lögðu áherslu á einstaka hæfileika kvenlíkamans. Nú styðja þau og leiðbeina hins vegar alla sem vilja „breastfeed, chestfeed or human milk feed“, óháð líffræðilegu kyni. Í efni samtakanna hefur orðinu „móðir“ verið skipt út fyrir „foreldri“ og talað er um „fjölskyldur sem gefa brjóstamjólk“ í stað „kvenna.“
Trans-konur (þ.e. karlar) mega nú taka þátt í hóptímum þar sem nýbakaðar mæður fá aðstoð frá konum sem sjálfar hafa haft börn á brjósti. Nokkrir sjálfboðaliðar hafa mótmælt þessu en hafa verið kallaðir nasistar, fordómafullir eða transfóbískir og jafnvel verið útilokaðir.
Ein af stofnendum samtakanna, Marian Tompson 96 ára, hefur yfirgefið stjórnina í mótmælaskyni og kallað nýju stefnuna „skopstælingu á upphaflegum tilgangi samtakanna.“ Í uppsagnarbréfi sínu skrifaði hún að breytingin frá því að fylgja viðmiðum náttúrunnar yfir í að láta undan fantasíum fullorðinna hafi eyðilagt samtökin.
„Brjóstagjöf“ karla innan breska heilbrigðiskerfisins
Innan breska heilbrigðiskerfisins, NHS, hefur „brjóstagjöf“ karla einnig verið kynnt. Ljósmæður í heilbrigðiskerfinu voru sendar á vinnustofur á vegum trans-aktívistahópsins The Queer Birth Club, sem telur að það sé „transmisogynist“ að halda því fram að „mjólk“ trans-kvenna (þ.e. karla) sé lakari en mjólk líffræðilegra kvenna.
Fetis-ráðgjafi á ráðstefnu um brjóstagjöf
Á Írlandi eru uppi miklar deilur vegna þess að brjóstagjafaráðgjafi með tengsl við fetis-samfélagið var kynntur sem fyrirlesari á árlegri ráðstefnu fyrir brjóstagjafaráðgjafa. Fyrirlesturinn bar titilinn „Lactation support for gender-diverse families“ – „Stuðningur við mjólkurmyndun fyrir fjölbreyttar kynjafjölskyldur.“
Viðkomandi ráðgjafi, Jacob Engelsman, hefur skrifað bókina Lactation for the Rest of Us: A Guide for Queer and Trans Parents and Helpers, sem er kynnt sem löngu tímabær bók um brjóstagjöf sem í þetta sinn sé ekki eingöngu ætluð „cis-konum.“ Markhópurinn er meðal annars „transfeminine“ og „cis-male parents“, sem geta fengið leiðbeiningar um hvernig eigi að hefja mjólkurmyndun.
Í bókinni segir hann, að það foreldri sem fæddi ekki barnið geti valið að gefa því brjóst til að komast nær barninu, en líka einfaldlega til að staðfesta foreldrahlutverk sitt, vegna upplifunarinnar eða til að upplifa „kynja-euforíu.“
Kynja-euforía er andstæða kynjavanlíðunar. Fyrir sumar trans-konur (karla) getur hún falist í upplifuninni á því að litið sé á þá sem konur en hjá öðrum getur hún verið líkamleg- kynferðisleg örvun sem þau sjálf kalla „euphoria boner.“
Um „cis-karlkyns foreldra“ skrifar hann:
„Varðandi spurninguna um hvers vegna þeir myndu vilja það virðist eðlilegt að ætla að ,,cis”-karlar vilji framleiða mjólk af sömu ástæðum og allir aðrir. Það er yfirleitt til að fóðra barn sitt og tengjast því og, í minna mæli, vegna forvitni, skemmtunar eða kynferðislegrar fullnægingu.“
Fyrir forvitni, skemmtunar eða kynferðislegrar fullnægingu… þannig verður barnið að tæki bæði fyrir þá karla sem upplifa sig sem karla og þá sem upplifa sig sem konur.
Samkvæmt ferilskrá hans hefur Engelsman áður haldið fyrirlestra um hvernig „kinksterar“, það er fetisistar, geti framkallað mjólkurmyndun sér til ánægju. Hann hefur einnig haldið nokkra fyrirlestra um meðal annars mjólkurmyndun á Frolicon-messunni, sem fjallar um fetis, kink, BDSM, kynhneigð, fjölást, LGBTQ+-sambönd og óhefðbundin sambönd og fjölskylduform.
Írska heilbrigðiskerfið, HSE, hefur varið ákvörðunina um að fá Engelsman til að tala og sagt að slíkir fyrirlestrar séu í samræmi við „jafnréttislöggjöf og stefnu um inngildingu.“
Nýjustu fréttirnar eru þær að ráðstefnunni hefur verið breytt í netviðburð.
Gagnrýni gerð að hatursorðræðu
Hinum megin á hnettinum er einnig í gangi mál þar sem ástralskur brjóstagjafaráðgjafi hefur verið dreginn fyrir dóm fyrir hatursorðræðu eftir að hafa gagnrýnt karlmann sem lítur á sig sem konu og hefur „gefið barni sínu brjóst.“
Jasmine Sussex hafði ráðlagt nýbökuðum mæðrum um brjóstagjöf hjá Australian Breastfeeding Association í 15 ár þegar deilan hófst árið 2020.
Trans-aktívistar vildu innleiða trans-nýyrði á borð við „human milk feeding“ og „people who chestfeed“.
Jasmine Sussex mótmælti hástöfum og opinberlega en var rekin ásamt öðrum gagnrýnendum. Málið vakti mikla athygli fjölmiðla. Í Facebook-færslu samtakanna á mæðradaginn montaði trans-auðkenndur karlmaður sig af því hvernig hann hefði haft nýfæddan son á brjósti sem eiginkonan fæddi.
Það varð upphafið að vaxandi deilu milli Sussex og mannsins, þar sem hann krafðist afsökunarbeiðni og bóta sem námu um 70.000 dönskum krónum.
Samkvæmt Sussex hefur hann einnig krafist þess að hún samþykki að tjá sig aldrei aftur opinberlega um brjóstagjöf transkvenna. Sussex neitaði: „Ég læt ekki hræða mig til þagnar.“
Lagadeilan stendur enn yfir. Nýjasta þróunin er sú að Sussex hyggst leggja fram skriflega yfirlýsingu frá leiðandi sérfræðingi í brjóstagjöf sem heldur því fram að líffræðilegir karlar geti aðeins seytt „svita eða gröft“ úr geirvörtunum.
„Kvenvæddur“ líkami
Ef maður hefur fylgst með trans-aktívisma kemur færsla dönsku læknasíðnanna tveggja ekki á óvart. Með trans-hugmyndafræðinni hefur kvenlíkaminn í síauknum mæli verið endurskilgreindur frá líffræði yfir í „frammistöðu kvenleika“, og það hafi opnað dyrnar fyrir karla.
Í útgáfunni af Kvinde kend din krop („Kona, þekktu líkama þinn“) frá 2013 vildi ritstjórnin stuðla að „útvíkkun á hugtakinu kona.“ Eftir marga kafla um tíðahvörf, fóstureyðingar, tíðir, brjóstagjöf o.fl. vék ritstjórnin loks að kenningum trans-hugmyndafræðinnar og spurði:
„… er þá svona einfalt, að skilgreina megi hvað ‚,kona” er – eingöngu út frá líkama?“
Þeir svöruðu sjálfir nei: „Líkaminn er ekki allt. Margt annað spilar inn í. Því það er jafn mikilvægt hvernig manni líður innra með sér og hvernig maður lítur út að utan?“ (bls.496).
Árið 2024 kynnti ný ritstjórn væntanlega 50 ára afmælisútgáfu sem nú skyldi skrifuð af „konum*, non-binary AFAB einstaklingum og transfeminine einstaklingum fyrir konur*, non-binary AFAB einstaklinga og transfeminine einstaklinga“.
Viðkomandi ritstjóri útskýrði fyrir danska ríkisútvarpinu DR:
„Það er enn að miklu leyti kvenvæddi líkaminn sem við einblínum á, en við reynum líka að tala til þeirra einstaklinga sem fengu karlkyn úthlutað við fæðingu en hafa síðan gengið í gegnum ,,kynskipti.” Það er jú ekkert leyndarmál að trans-kona (karlmaður), ef hún hefur gengið í gegnum kynskipti, getur einnig gefið barni brjóst.“
Mörk sem ekki má setja
Sú staðreynd að karlmaður geti upplifað sig sem fórnarlamb hatursorðræðu þegar kona fordæmir hegðun hans, að gefa barni brjóst, sýnir hvernig trans- hugmyndafræðin hefur innrætt körlum eitthvað sem er heilagt og ber að viðurkenna.
Kynja- og transhugmyndafræðin fyrirlítur mörk, og „brjóstagjöf“ karla á börnum er eitt af mörkunum sem, líkt og svo margt annað, verður farið yfir í nafni inngildingar, nema við köllum þetta það sem það er: tilraun á ungabörnum, knúin áfram af þörfum karla, fetis eða autogynephiliu.
Karlmaður sem upplifir sig sem konu lýsir því hvernig honum leið þegar hann gaf barni sínu brjóst. Eiginkona hans fæddi barnið og hann er líffræðilegur faðir þess.
Tilvitnunin er úr níu ára gamalli grein hans í miðlinum The Stranger:
„Þegar barnið festi sig við brjóstið mitt fór ótrúleg efnakeðja um allan líkamann eins og elding. Ímyndaðu þér það rafmagnaðsta sem maki hefur nokkru sinni gert við þig og margfaldaðu það með tíu. Ég fann hvernig heilinn endutegdist og skapaði brautir sem myndu tengja mig barninu til frambúðar.
(Og já, ég varð svolítið örvaður af þessu. Ekki dæma mig.)“
Helga Dögg Sverrisdóttir