Kaufmann: Þorgerður Katrín lét þau skilaboð berast að ég ætti að selja Vélfag Íslendingi

Ivan Kaufmann, meirihlutaeigandi Vélfags, heldur því fram að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafi látið þau skilaboð berast til sín að hann ætti að selja Vélfag í hendur íslensks aðila.

Þetta kom fram í ítarlegu viðtali Kaufmanns við Frosta Logason á Brotkasti.

Auglýsing Auglýsing

Að sögn Kaufmanns bárust skilaboðin í gegnum þáverandi lögmann Vélfags á þeim tíma sem deilur fyrirtækisins við íslensk stjórnvöld stóðu sem hæst.

„Þú þarft að selja þetta fyrirtæki og þú þarft að selja það Íslendingi,“ segir Kaufmann að sér hafi verið sagt.

Þegar hann var spurður hvaðan þau skilaboð hefðu komið svaraði hann skýrt:

„Þau komu frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.“

Kaufmann fullyrðir jafnframt að þáverandi lögmaður félagsins hafi fengið símtal frá utanríkisráðherra þar sem þessi skilaboð hafi verið færð áfram.

„Hann fékk símtal frá henni þar sem hún sagði: Seldu það Íslendingi.“

Getur ekki sannað fullyrðinguna

Aðspurður hvort hann geti sannað að þessi samskipti hafi átt sér stað svarar Kaufmann neitandi.

„Nei, það get ég ekki.“

Hann segir þó að þetta hafi ekki verið einskiptisatvik.

Samkvæmt frásögn hans höfðu sömu skilaboð komið fram þrisvar sinnum; tvisvar í gegnum lögmann Vélfags á þeim tíma og einu sinni í gegnum stjórnarmann félagsins.

Eigandi Vélfags sakaður um að tengjast rússnesku leyniþjónustunni – hafnar ásökunum sem „tilbúnum og ósönnum“

Segir að honum hafi verið gefið til kynna hver ætti að kaupa fyrirtækið

Kaufmann segir að síðar hafi honum verið gefnar vísbendingar sem hafi skilið „engan vafa eftir“ um hver ætti að kaupa fyrirtækið.

Hann neitar hins vegar að upplýsa um nafn viðkomandi.

„Að nefna það nafn myndi setja fólk sem hefur stutt mig á Íslandi í hættu.“

Þá tekur hann sérstaklega fram að þar hafi hvorki verið um Marel eða Samherja að ræða.

„Af hverju seldir þú ekki bara?“

Í viðtalinu spurði Frosti Logason Kaufmann einnig hvers vegna hann hefði ekki einfaldlega selt fyrirtækið og losað sig þannig undan deilunni.

Svar Kaufmanns var afdráttarlaust.

„Vilt þú afhenda börnum þínum Ísland þar sem ráðherra getur sagt: Ég vil bílinn þinn, gefðu hann syni mínum. Ég vil húsið þitt, gefðu það vini mínum. Ég vil fyrirtækið þitt, gefðu það eiginmanni mínum?“

Kaufmann segir að hann hafi litið svo á að með því að selja fyrirtækið við slíkar aðstæður væri hann að samþykkja að stjórnmálamenn gætu í reynd ákveðið hverjir mættu eiga fyrirtæki og hverjir ekki.

„Ég mun aldrei afhenda fyrirtæki með þeim hætti.“

Segist hafa vitað að ákvörðunin gæti kostað störf

Kaufmann segir að hann hafi gert sér grein fyrir afleiðingunum.

„Ég vissi að þetta yrði erfitt stríð. Ég vissi að fólk gæti misst vinnuna.“

Þrátt fyrir það hafi hann talið sig verða að standa á prinsippinu.

„Ég ætlaði aldrei að gefa fyrirtækið frá mér með þessum hætti.“

Nútíminn sendi Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra fyrirspurn vegna fullyrðinga Ivan Kaufmanns um að hún hefði látið þau skilaboð berast að hann ætti að selja Vélfag til íslensks aðila. Svör höfðu ekki borist þegar fréttin var birt.

UPPFÆRT Klukkan 11:00. Eftir að fréttin var birt bárust Nútímanum þau svör frá utanríkisráðuneytinu að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir teldi ekki við hæfi að tjá sig um málið á meðan það væri fyrir dómstólum.

Þess ber þó að geta að aðalmeðferð í máli Vélfags gegn ríkinu er lokið og aðalmeðferð í máli Ivan Kaufmanns gegn ríkinu lauk í hádeginu í gær, 8. júní. Ekki verða lögð fram frekari sönnunargögn eða málatilbúnaður af hálfu aðila og bíða málin nú dómsúrlausnar.

Hér fyrir neðan má sjá brot úr viðtali Frosta Logasonar við Ivan Kaufmann en til að sjá spjallið í heild sinni mælum við með áskrift á Brotkast.is

Auglýsing Auglýsing

læk

Auglýsing Auglýsing
Auglýsing Auglýsing