Ný og vægast sagt óvægin skýrsla sem birt var í Bretlandi í dag sýnir að tíu ára stúlka, Sara Sharif, þurfti að gjalda með lífi sínu fyrir röð mistaka hjá yfirvöldum.
Skýrslan leiðir í ljós að starfsmenn félags- og barnaverndar forðuðust að spyrja spurninga um áverka sem huldir voru undir slæðu barnsins, af ótta við að „valda menningarlegum árekstrum og móðga föðurinn“.
Á sama tíma fjarlægði faðir stúlkunnar hana smám saman úr skóla- og félagslífi og á endanum var hún pyntuð og myrt í heimili fjölskyldunnar.
Urfan Sharif, faðir Söru, og stjúpmóðir hennar Beinash Batool, voru í desember síðastliðnum dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir morðið.
Dómari sagði við aðalmeðferð að pyntingar barnsins væru „það versta sem hann hefði séð á öllum sínum langa ferli sem dómari“.
Stúlkan var með yfir 100 áverka, þar á meðal brotinn háls, bruna, bitför og högg eftir krikketkylfu, málmstöng og kökukefli.
Hún var bundin, sett í plastpoka og barin til bana.
„Kerfið hélt ekki utan um upplýsingarnar“
Ótti við fordóma og of mikil pressa á starfsmenn reyndust afdrifarík samkvæmt skýrslunni.
Sharif hafði hvorki meira né minna en 16 ára skráða sögu um ofbeldi gegn konum og börnum.
Hann hafði bundið, kyrkt, barið og hneppt konur í einangrun, en aldrei verið ákærður.
Upplýsingar um ofbeldi hans virtust hverfa þegar mál hans voru flutt milli deilda, málaskrá var ekki uppfærð og dómstólar fengu ekki rétta mynd af aðstæðum.
Þrátt fyrir að stúlkan hefði verið sett í fóstur árið 2014, var ákveðið að senda hana aftur til föður síns árið 2019.
Sú ákvörðun byggðist á skýrslu óreynds starfsmanns sem sögð er hafa óttast að valda menningarlegum árekstrum.
Slæða sem huldi áverkana
Árið 2021 byrjaði Sara að mæta í skóla með slæpu (hijab), þrátt fyrir að engin kona á heimilinu bæri slíkan klæðnað og hún hefði aldrei áður gert það.
Skýrslan segir að starfsmenn hafi óttast að spyrja spurninga þar sem þeir vildu ekki virðast fordómafullir gagnvart pakistönskum föður.
Sú varfærni varð til þess að alvarlegir áverkar fóru fram hjá þeim.
Skólinn sá marbletti í andliti hennar árið 2022, en Sara dró slæðuna niður og sagði áverkana vera slys.
Þetta var samþykkt án frekari athugunar.
„Hún hvarf úr kerfinu“
Faðirinn skráði hana úr námi og útskýrði skráningu í heimaskóla með því að stúlkan væri lögð í einelti.
Þetta var ekki sannreynt.
Heimsókn sem átti að fara fram innan tíu daga tafðist í þrjár vikur vegna sumarleyfa og veikinda.
Þegar loks var reynt að heimsækja heimilið 7. ágúst 2023 fór starfsfólk á rangt heimilisfang.
Daginn eftir lést Sara.

Nágrannar heyrðu öskur – en óttuðust að vera kölluð rasistar
Nágrannar höfðu ítrekað heyrt öskur úr íbúðinni.
Enginn hringdi á lögreglu.
Skýrslan segir að fólk hafi óttast að verða sakað um fordóma gagnvart fjölskyldu með pakistanskan bakgrunn.
Enginn rekinn
Samkvæmt skýrslunni er ljóst að margar stofnanir gerðu mistök en enginn einn starfsmaður bar ábyrgð á þeirri röð mistaka sem leiddi til dauða barnsins.
Enginn verður rekinn.
Terence Herbert, framkvæmdastjóri Surrey County Council, baðst afsökunar í dag og sagði:
„Við erum algerlega miður okkar. Við munum innleiða allar tillögur skýrslunnar og vinna með öllum samstarfsaðilum til að tryggja að þetta endurtaki sig ekki.“
Skýrslan endar á eftirfarandi setningu:
„Þetta voru ekki ein mistök. Þetta var samansafn lítilla mistaka. Sara var ekki vernduð.“