Fjöldi kvenna í London hefur sagt frá því að þær hafa verið keyrar niður af krafti á almannafæri af ókunnugum körlum í nýrri og ömurlegri ofbeldistísku.
Eitt nýjasta dæmið kom upp á sunnudag þegar Ayla Mellek, 20 ára markaðsfulltrúi, var á göngu meðfram Mile End síkinu ásamt vinkonu sinni þegar stór maður hljóp beint á hana af miklum krafti og keyrði hana til jarðar.
Ayla segist hafa orðið fyrir svo miklu höggi að loftið fór úr lungum hennar og hún hafi heyrt „ánægjuhlátur“ frá árásarmanninum í kjölfarið.
„Hann leit út fyrir að vera tveir metrar á hæð, og ég reyndi að víkja, en hann stefndi beint á mig og keyrði mig niður,“ segir Ayla.
Hún hlaut skurði á höndum og hálsmeiðsli og telur árásina hafa verið vísvitandi.
Seinna kom í ljós að sami maður hafði ýtt eldri manni ofan í síkið skömmu áður.
Vaxandi vandamál og erfitt að stöðva
Eftir að Ayla birti frásögn sína á TikTok, lýstu margar konur sambærilegum upplifunum, þar á meðal Elly Bailey sem var felld á svipaðan hátt, og Moanna sem meiddist á öxl eftir svipaða árás í neðanjarðarlestinni.
„Engin afsökun, ekkert hik, bara hljóp beint á mig,“ sagði Moanna.
Lögreglurannsókn hafin
Metropolitan lögreglan hefur hafið rannsókn á árásinni á Aylu en engar handtökur hafa verið framkvæmdar.
„Atvikið átti sér stað sunnudaginn 4. maí kl. 12:30. Um er að ræða meint áras á 20 ára konu á göngu meðfram síkinu í Bethnal Green.
Lögreglan rannsakar málið en enginn hefur verið handtekinn,“ segir í yfirlýsingu lögreglu.
Hverjir eru að verki?
„Tískan“ er sögð eiga uppruna sinn í Japan og er sögð vera vinsæl meðal svokallaðra „incels“ en þetta er þó ekki nýtt fyrirbæri þó svo að íbúar London séu nýbyrjaðir að verða varir við þetta.
Fyrir rúmlega ári síðan var karlmanni í Frakklandi vísað úr landi fyrir svipaða árás sem átti sér stað í París, en sjaldgæft er að þessar árásir náist á myndband.
Hægt er að sjá myndbandið af eldri árásinni hér fyrir neðan en þar hrindir maðurinn konu niður stiga að tilefnislausu meðan hann gekk rólegur framhjá.