Á sama tíma og Evrópusambandið er upptekið við að þvinga fram áfasta drykkjatappa í nafni umhverfisverndar, hefur Kína tekið risastórt skref inn í framtíð flugsamgangna.
Þetta markar tímamót: Fyrsta skiptið sem ómönnuð farþegaflugför hafa hlotið slík opinber rekstrarleyfi, og opnar fyrir reglubundna, flugsamgöngur milli borga.
Fyrirtækin sem fengu leyfið eru EHang Holdings í Guangdong og Hefei Hey Airlines í Anhui.
Prufukeyrslu lokið
Dróninn EH216-S frá EHang hefur þegar lokið yfir 60.000 flugferðum án vandkvæða og er fyrsti farþegadróninn í heiminum sem hefur fengið öll þrjú helstu flugöryggisvottorðin.
Samkvæmt yfirlýsingu frá EHang munu íbúar Guangzhou geta bókað ferð í þessum drónum líkt og með venjulegri leigubílaþjónustu.
Fyrirtækið hyggst setja upp lághæðarflugstöðvar víðs vegar um borgina og bjóða upp á reglulegar ferðamannaflugferðir, útsýnistúra og almennar farþegaferðir.
Í Hefei hefur þegar verið tilkynnt um upphaf ferða frá almenningsgörðum og öðrum stöðum í borginni.
Ætla að leiða þróunina
Kínverjar segja að landið ætli sér stóra hluti í þessum geira og vera leiðandi á heimsvísu í flugsamgöngum af þessu tagi.
Aðspurður hver munurinn sé á þessum drónum og þyrlum var svarið að drónarnir eru rafknúnir, ákaflega hljóðlátir og ómannaðir (fyrir utan farþega).
China has officially entered the era of „flying taxis“.
2 Chinese companies have obtained the commercial operation certificate for autonomous passenger drones from CAAC.
China is at the forefront of the world’s 4th Industrial Revolution. pic.twitter.com/POFiLTs3I1
— Li Zexin (@XH_Lee23) March 31, 2025