Kláraði grunnskóla með 1,5 í meðaleinkunn – Segir samfélagið of fljótt að afskrifa „tossana“

Sigurjón Ingvarsson, byggingastjóri og einn helsti drifkrafturinn að uppbyggingu verknáms í Vestmannaeyjum, segir samfélagið alltof fljótt að afskrifa ungmenni sem eigi erfitt með hefðbundið bóknám.

„Ég var með 1,5 í meðaleinkunn þegar ég kláraði tíunda bekk,“ segir Sigurjón í viðtali við Eyjafréttir.

Auglýsing

Fann sína fjöl í verklegu námi

Sigurjón segir að áhugi hans á námi hafi verið lítill á yngri árum. Þrátt fyrir arfaslakan námsárangur komst hann inn í Stýrimannaskólann og starfaði síðar bæði sem stýrimaður og skipstjóri.

Síðar sneri hann sér að húsasmíði og hefur á undanförnum árum tekið virkan þátt í að byggja upp öflugt iðnnám við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum.

Með samstarfi skólans, atvinnulífsins og samfélagsins hefur meðal annars tekist að bjóða upp á húsasmíða- og múraranám í Eyjum og skapa þannig fleiri tækifæri fyrir ungt fólk sem vill leggja stund á verklegt nám.

Margir fyrrverandi „tossar“ orðnir öflugir iðnaðarmenn

Sigurjón segir hæfileika fólks birtast með ólíkum hætti og að námsárangur í bóklegum greinum segi ekki endilega til um framtíðarmöguleika þess.

Hann bendir á að margir sem hafi verið stimplaðir sem „tossar“ á skólaárunum séu í dag öflugir iðnaðarmenn með farsælan starfsferil.

Sigurjón vill gefa fólki raunveruleg tækifæri til að finna styrkleika sína og segir að slíkt geti skipt sköpum, ekki aðeins fyrir einstaklinginn heldur samfélagið í heild.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing