Áhorfendur í upptöku á hlaðvarpsþætti Oprah Winfrey klöppuðu þegar bandarískur læknir kallaði eftir því að litaðar konur, sem sitja í fangelsi eftir að hafa drepið börn sín, fengju sama stuðning og Lindsay Clancy hefur notið.
Ummælin féllu í nýjum þætti The Oprah Podcast sem fjallar um mál Clancy og fæðingargeðrof. Hún hefur viðurkennt að hafa kyrkt þrjú ung börn sín en vörn hennar hélt því fram að hún hefði verið haldin alvarlegu fæðingargeðrofi og því ekki borið refsiábyrgð á verknaðinum.
Kallaði eftir „bleiku bolunum“ fyrir fleiri konur
Kameelah Phillips, bandarískur kvensjúkdóma- og fæðingarlæknir, sagði í þættinum að stuðningurinn við Clancy hefði ekki náð með sama hætti til litaðra kvenna í sambærilegri stöðu.
„Ég vil að við sýnum sama eldmóð gagnvart fólki sem lítur ekki út eins og Lindsay,“ sagði Phillips og vísaði meðal annars til aðgangs Clancy að þjónustu, menntunar hennar og forréttinda.
Hún sagði litaðar konur sitja í fangelsum víða um Bandaríkin „fyrir hið sama“ án þess að almenningur hefði nokkurn tíma heyrt um þær.
Phillips hvatti fólk síðan til að sýna þeim konum sama stuðning og stuðningsmenn Clancy, sem hafa meðal annars mætt í bleikum bolum við dómshúsið. Salurinn tók ummælunum með lófataki.
Myndskeið af augnablikinu hefur vakið hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum eftir að bandaríski samfélagsmiðlamaðurinn Collin Rugg birti það á X.
Room full of women on the Oprah show starts cheering after a doctor says that black female child murderers need to be supported too, not just the white child murderers like Lindsay Clancy.
„I want us to have the same passion for [female child murderers] who don’t look like… pic.twitter.com/VbaQfq9BYi
— Collin Rugg (@CollinRugg) September 10, 2026
Kyrkti þrjú börn sín
Lindsay Clancy kyrkti börn sín þrjú á heimili fjölskyldunnar í Massachusetts í janúar árið 2023. Börnin voru fimm ára, þriggja ára og átta mánaða.
Eftir verknaðinn skar Clancy sig og stökk út um glugga á annarri hæð. Hún lifði fallið af en lamaðist neðan mittis.
Clancy neitaði því ekki fyrir dómi að hafa orðið börnunum að bana. Deilan snerist þess í stað um hvort hún hefði verið fær um að gera sér grein fyrir eðli gjörða sinna og greina rétt frá röngu þegar þær áttu sér stað.
Saksóknarar héldu því fram að hún hefði skipulagt morðin og bæri fulla refsiábyrgð. Vörnin sagði hana hins vegar hafa verið alvarlega veika, ofhlaðna geðlyfjum og haldna fæðingargeðrofi.
Einn kviðdómari kom í veg fyrir niðurstöðu
Réttarhöldunum lauk án niðurstöðu 4. september eftir að kviðdómur hafði rætt málið í tæpar 40 klukkustundir á sjö dögum. Samkvæmt verjanda Clancy voru ellefu kviðdómendur fylgjandi því að sýkna hana vegna geðsjúkdóms en einn stóð gegn þeirri niðurstöðu.
Dómarinn lýsti því yfir að kviðdómurinn væri ófær um að komast að samhljóða niðurstöðu og ógilti því réttarhöldin. Saksóknarar þurfa nú að ákveða hvort málið verði höfðað að nýju, ákæran milduð eða samið um niðurstöðu. Clancy verður áfram í haldi og undir geðlæknismeðferð á ríkisreknu sjúkrahúsi. CBS News fjallaði ítarlega um niðurstöðu réttarhaldanna.
Tannlæknastofa í Reykjanesbæ lýsir yfir stuðningi við Lindsay Clancy
Umræðan snerist um fæðingarrofgeð
Ummæli Phillips voru sett fram í umræðu um það hvort konur sem fremja alvarlega verknaði undir áhrifum fæðingarrofgeðs fái sambærilegt læknisfræðilegt mat, málsvörn og samúð.
Hún var því ekki að kalla eftir almennum stuðningi við allar mæður sem drepið hafa börn sín. Boðskapur hennar var að kynþáttur, efnahagur og aðgangur að heilbrigðis- og lögfræðiþjónustu gætu ráðið því hvort mál kvenna væru skoðuð í ljósi alvarlegra geðsjúkdóma.
Lófatakið hefur engu að síður vakið mikla athygli, ekki síst vegna þess að í umræðunni um Clancy hefur að mati gagnrýnenda meiri áhersla verið lögð á líðan móðurinnar og stuðning við hana en börnin þrjú sem létust.