Kolbeinn Stefánsson, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands, segir kosningabaráttuna fyrir nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu hafa einkennst af heift, látum og litlu innihaldi.
Hann óttast að skautunin og skítkastið í aðdraganda hennar varpi löngum skugga á íslensk stjórnmál.
Í pistli sínum segist Kolbeinn hafa verið hnugginn um skeið og að sú tilfinning hafi ágerst þegar hann fylgdist með umræðunni fyrir atkvæðagreiðsluna.
Vissulega hafi sumir reynt að leggja málefnalegt og innihaldsríkt framlag til umræðunnar en það hafi drukknað í hávaðanum.
„Þetta var einhverskonar froðudiskó dauðans, dauða hugsunar og heilinda,“ skrifar hann.
„Heift, læti og lítið innihald“
Fyrirsögn pistilsins, „Saga sögð af fábjána“, vísar til þekktra orða úr leikriti Shakespeares, Macbeth:
„It is a tale told by an idiot, full of sound and fury, signifying nothing.“
Kolbeinn segir þessi orð fanga kosningabaráttuna fullkomlega: „Heift, læti og lítið innihald.“
Hjólar í uppgjör Kristrúnar
Kolbeinn gagnrýnir einnig mat Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra á umræðunni.
Hann segist hafa fengið sterka óraunveruleikatilfinningu þegar hann horfði á hana reyna að finna gildi í því sem hafði gerst með því að segja að almenningur hefði rætt utanríkismál á hærra plani en áður.
„Hljómaði eins og hún og hinar valkyrjurnar hefðu stigið niður frá Ásgarði og betrað okkur sótsvartan almúgann með þessum gjörningi sínum,“ skrifar Kolbeinn.
Sjálfur segist hann hafa upplifað kosningabaráttuna með allt öðrum hætti. Ríkisstjórnin hafi lagt atkvæðagreiðsluna á þjóðina án nægjanlegs undirbúnings og afleiðingin orðið skautun og skítkast.
„Ég óttast að það varpi löngum skugga á íslenska pólitík. Þannig að ég er dálítið hnugginn,“ skrifar Kolbeinn.