Kolbeinn segist hafa fengið tilboð um að tapa bardaga gegn greiðslu

Kolbeinn Kristinsson, atvinnumaður í hnefaleikum, segir að honum hafi verið boðið fé fyrir að tapa bardaga viljandi. Kolbeinn var gestur í Bjórkastinu og umræðuefnið var spilling í hnefaleikum og Kolbeinn kom inn á ítök albönsku mafíunnar í íþróttinni.

Segist hafa fengið tvö tilboð

Kolbeinn segir um sé að ræða albanskan hnefaleikakappa sem sé á lista yfir bestu 20 boxara í heiminum en eigi sæti sitt ekki skilið að mati Kolbeins. Hann segir að að sér hafi fyrst verið boðnar 60 þúsund evrur og síðar 80 þúsund evrur fyrir að berjast við ákveðinn boxara og tapa bardaganum.

Auglýsing

Spurði hvað myndi gerast ef hann myndi vinna

Kolbeinn segist hafa spurt hvað myndi gerast ef bardaginn færi ekki eins og til stóð og hann myndi „óvart“ rota andstæðing sinn.

„Ég spurði hvað myndi gerast ef ég myndi rota hann. Þá var mér sagt að ég gæti vaknað með fjóra menn inni í herbergi og það væri óvíst ekki hvort ég kæmist heim aftur,“ segir hann.

Hér er svo hægt að horfa á allan þáttinn:

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing