Kona sem var stungin í hálsinn í miðborg Birmingham að tilefnislausu er látin af sárum sínum

34 ára gömul kona, Katie Fox að nafni, lést á sjúkrahúsi eftir að hafa verið stungin í hálsinn í miðborg Birmingham á föstudagskvöld.

Lögreglan í West Midlands staðfesti andlát hennar í dag og segir árásina hafa verið tilefnislausa.

Auglýsing

Árásin átti sér stað um klukkan níu um kvöldið skammt frá lestarstöðinni New Street.

Fox var flutt með alvarleg meiðsli á sjúkrahús, þar sem hún lést af sárum sínum.

Ungur maður ákærður fyrir morð og fleiri brot

Djeison Rafael, 21 árs, kom fyrir dóm í Birmingham á mánudag þar sem hann var ákærður fyrir morð á Katie Fox, tvær líkamsárásir, vörslu hnífs og árás á neyðarstarfsmann.

Samkvæmt ákæru hafði hanngerst sekur um tvær aðrar líkamsárásir, sú fyrri átti sér stað þann 27.október og sú seinni 7.nóvember.

Hann er einnig sakaður um að hafa ráðist á lögreglumann daginn eftir morðið.

Þriðja stungumálið í miðborginni á einum mánuði

Árásin átti sér stað aðeins örfáum metrum frá þar sem tvær stungur áttu sér stað í október, þegar tveir 17 ára drengir voru stungnir við Primark verslunina í miðborginni.

Lögreglan hefur aukið gæslu í miðborginni til að tryggja öryggi almennings í kjölfar þessara árása.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing