Kona frá Tranmere í Englandi hefur verið dæmd fyrir hatursorðræðu gegn samkynhneigðum eftir að hún kallaði mann sem hún sakar um að hafa ráðist á sig „faggot“ (uppnefni yfir samkynhneigða) í textaskilaboðum sem hún sendi vinkonu sinni þar sem hún var að lýsa áverkum sínum og árásinni.
Elizabeth Kinney, 34 ára fjögurra barna móðir og starfsmaður á hjúkrunarheimili, sendi skilaboð til fyrrum vinkonu sinnar þar sem hún sagðist hafa verið lamin af sameiginlegum kunningja.
Hún sendi jafnframt myndir af áverkum sínum og þurfti síðar að leita á sjúkrahús.
Vinkonan tilkynnti málið til lögreglu vegna orðalagsins, og Kinney var síðar ákærð fyrir að senda móðgandi eða ærumeiðandi skilaboð í gegnum fjarskiptakerfi.
Hún játaði brotið fyrir héraðsdómi.
Dómari: Ummælin voru hómófóbísk
Dómarar töldu orðalagið uppfylla skilyrði hatursorðræðu og hækkuðu refsingu í samræmi við það.
Kinney hlaut tólf mánaða samfélagsþjónustu, þarf að vinna 72 klukkutíma ólaunað og taka þátt í tíu endurhæfingardögum.
Hún þarf einnig að greiða 364 pund, eða 61 þúsund krónur í kostnað og gjöld.
Engar upplýsingar komu fram um að einhver hafi verið handtekinn eða ákærður vegna árásarinnar sjálfrar.
Varnaraðili: „Hugsunarlaus útrás í reiðikasti“
Lögmaður Kinney, Simon Simmonds, sagði að skjólstæðingur hans hefði verið mikið niðri fyrir eftir að hafa orðið fyrir árás og hefði sent myndir af töluverðum áverkum.
„Hún var í uppnámi og að reyna að tjá sínar tilfinningar,“ sagði hann. „Henni finnst mjög vandræðalegt að lesa þetta núna. Orðið var ekki notað gegn kynhneigð mannsins, heldur hugsunarleysi.“
Hann bætti við að hún hefði unnið í 16 ár á hjúkrunarheimili og væri í námi til að verða hjúkrunarfræðingur.
Dómari: „Ummælin voru samt refsiverð“
Við niðurstöðu málsins sagði dómarinn Robert Waugh að þótt Kinney hefði verið að mikið niðri fyrir breytti það engu um að ummælin hefðu verið látin falla og væru hómófóbísk og refsiverð.