Kona um áttrætt lést í gær af völdum alvarlegs umferðarslyss sem varð á Suðurlandsbraut í Reykjavík síðasta mánudag, 8. desember.
Tilkynning um slysið barst lögreglu kl. 9.51.
Konan var gangandi á leið yfir Suðurlandsbraut, á gangbraut á móts við Hilton Reykjavík Nordica, þegar hún varð fyrir bíl sem ekið var í vesturátt eftir brautinni. Hún var flutt alvarlega slösuð á Landspítalann þar sem hún lést í gær.
Grunur um að ökumaður hafi ekið yfir á rauðu ljósi
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu bendir rannsókn málsins til að gangbrautarljós hafi verið rauð fyrir akandi umferð þegar slysið varð.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Rannsóknarnefnd samgönguslysa vinna nú að rannsókn tildraga slyssins. Engar frekari upplýsingar hafa verið gefnar á þessu stigi.