Kona úr Þjóðvarðliðinu látin eftir skotárás í Washington DC – Stjórnvöld hafa birt myndband af árásinni

Einn af þeim tveimur hermönnum úr bandaríska Þjóðvarðliðinu sem skotnir voru í árás í Washington DC á miðvikudag er látinn.

Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, staðfesti andlátið í fyrstu beinu ræðu sinni eftir árásina.

Auglýsing

20 ára og lést af sárum sínum

Hin látna er Sarah Beckstrom, 20 ára frá Vestur-Virginíu.

Hún var skotin ásamt Andrew Wolfe, í því sem yfirvöld kalla fyrirfram skipulagðt launsátur“.

Trump sagði í ávarpi sínu að Wolfe væri nú að berjast fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi.

„Sarah Beckstrom frá Vestur-Virginíu, einn af hermönnunum sem um ræðir, mjög virt og ung kona. Hún er látin. Hún er ekki lengur með okkur,“ sagði forsetinn.

Faðirinn vissi að batahorfur dótturinnar væru slæmar

Fyrr sama dag sagði faðir hennar, Gary Beckstrom, í viðtali við New York Times að hann ætti ekki von á að dóttirin lifaði af.

„Ég held í höndina á henni núna,“ sagði hann. „Hún á lítinn sem engan möguleika á bata.“

Árásarmaðurinn í haldi yfirvalda

Yfirvöld hafa staðfest að hinn grunaði árásarmaður sé Rahmanullah Lakanwal, 29 ára afganskur ríkisborgari.

Jeanine Pirro, ríkissaksóknari, staðfesti nafn hins grunaða og sagði rannsókn málsins halda áfram.

Bandarísk yfirvöld hafa jafnframt birt myndband úr eftirlitsmyndavélum sem sýna árásina sjálfa og hafa kallað atburðinn „hryðjuverkastarfsemi“ í fyrstu opinberu yfirlýsingum sínum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing