Konum sagt að hverfa úr augsýn þegar hindúaleiðtogi heimsótti Eiffelturninn

Eiffelturninn var lokaður gestum allan mánudaginn eftir að starfsfólk lagði niður störf. Ástæðan var sú að kvenkyns starfsmönnum turnsins var skipað að fela sig vegna komu andlegs leiðtoga hindúahreyfingar.

Samkvæmt starfsfólkinu var sumum konunum gert að yfirgefa vinnustöðvar sínar og halda sig inni í lokuðum herbergjum. Karlkyns starfsmenn mættu til að leystar aðrar af og öllum kvenkyns starfsmönnum var bannað að ganga um ákveðin svæði turnsins meðan heimsóknin stóð yfir.

Auglýsing

Báðu um að samskipti við konur yrðu takmörkuð

Verkfallið átti sér stað á laugardag þegar um hundrað manna sendinefnd frá hindúasamtökunum BAPS heimsótti Eiffelturninn.

Mahant Swami Maharaj, 93 ára andlegur leiðtogi hreyfingarinnar, var meðal gestanna. Fulltrúar hópsins höfðu óskað eftir því að heimsókn hans yrði skipulögð þannig að samskipti hans við konur yrðu sem minnst.

Stjórnendur Eiffelturnsins samþykktu beiðnina og skipuðu konunum inn í lokuð herbergi.

„Kvenkyns starfsmenn mega ekki vera settir til hliðar, þvingaðar til að láta karlmenn leysa sig af eða faldar inni í lokuðum herbergjum eingöngu vegna þess að þær eru konur,“ sagði í yfirlýsingu starfsfólksins.

Stjórnendur viðurkenna að hafa gert mistök

Rekstrarfélag Eiffelturnsins hefur staðfest að beiðni hafi borist frá sendinefndinni um að takmarka samskipti við konur.

Félagið viðurkennir jafnframt að skilyrðin að það hefði aldrei átt að samþykkja skilyrðin og segir þau hvorki samræmast gildum fyrirtækisins né grundvallarreglum um jafnrétti kynjanna.

Starfsfólkið kom saman til fundar á mánudagsmorgun og neitaði að hefja störf að nýju. Eiffelturninn var því lokaður allan daginn og gestum með miða lofað endurgreiðslu.

Borgaryfirvöld í París hafa boðað rannsókn á því hvernig ákvörðunin var tekin.

Konur og karlar aðskilin við athöfnina

Heimsóknin tengdist vígslu fyrsta stóra musteris BAPS í Frakklandi.

Við sjálfa vígsluathöfnina á sunnudag var Mahant Swami Maharaj eingöngu umkringdur munkum og öðrum körlum. Athöfninni var hins vegar varpað á stóra skjái fyrir um sjö þúsund manns. Þar sátu konur og karlar aðskilin.

BAPS samtökin höfðu ekki svarað fyrirspurnum franskra fjölmiðla þegar fréttin er skrifuð.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing